Birgi tókst ekki að fylgja eftir góðum fyrsta hring Kristinn Páll Teitsson skrifar 14. ágúst 2015 10:50 Birgir varð Íslandsmeistari í höggleik 2014 og 2013 en hér heldur hann á titlinum 2014. Vísir/Daníel
Birgir Leifur Hafþórsson náði ekki að fylgja eftir góðum fyrsta hring á GANT mótinu í Finnlandi í dag en Birgir Leifur lauk leik á 73 höggum í dag, alls tveimur höggum undir pari eftir að hafa leikið á fjórum höggum undir pari í gær. Mótið er hluti af Áskorendamótaröðinni sem er næst-sterkasta atvinnumannamótaröð kylfinga í Evrópu. Var Birgir Leifur í fjórða sæti ásamt öðrum kylfingum eftir fyrsta dag en hann féll niður í 25. sæti í dag. Birgir Leifur fór vel af stað á fyrsta hring og lauk leik á fjórum höggum undir pari en hann lék sérstaklega vel á fyrri níu holum vallarins. Birgir var á einu höggi undir pari eftir fyrri níu holur dagsins en hann fékk þrjá fugla, tvo skolla og fjögur pör á fyrstu níu holum dagsins. Á seinni níu holunum lenti hann þó í töluvert meiri vandræðum, sömu holum og hann lék afar vel á deginum áður. Fékk fjóra skolla, fjögur pör og aðeins einn fugl á seinni níu holum dagsins. Eins og staðan er núna kemst Birgir Leifur í gegn um niðurskurðinn en sextíu efstu kylfingarnir komast í gegn um niðurskurðinn. Þegar þetta er skrifað miðast niðurskurðurinn við parið.
Golf Tengdar fréttir Birgir Leifur fór vel af stað í Finnlandi Íslenski kylfingurinn fékk sjö fugla á fyrsta degi á GANT mótinu í Finnlandi en mótið er hluti af Áskorendamótaröðinni. 13. ágúst 2015 16:00 Mest lesið „Þetta félag mun aldrei deyja“ Enski boltinn „Við erum of mistækir“ Handbolti Barnalegir og hefðu getað kastað leiknum frá sér Enski boltinn Á stall með Jordan eftir frammistöðu kvöldsins Körfubolti LeBron frá í vikur frekar en daga Körfubolti Atalanta batt enda á sigurgöngu Juventus Fótbolti Benedikt Gunnar kallaður inn í landsliðshópinn Handbolti „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ Íslenski boltinn Danski dómarinn aftur á börum af velli Handbolti Trump fékk gulllykil og sagði tollastríðið auka spennu fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Tiger syrgir móður sína og sleppir Players Enn að jafna sig á fráfalli móður sinnar og óviss hvort hann keppir á Players Ryder Cup snýr aftur á Stöð 2 Sport Var í mótorhjólagengi, sat inni en er nú kominn á Opna breska Fór tvisvar sinnum holu í höggi á sama hringnum Hlógu að Tiger: Eitt það vandræðalegasta á ferlinum Tiger Woods dregur sig úr keppni á sínu eigin móti Tiger snýr aftur á PGA-mótaröðina Opna bandaríska fyrsta risamótið til að opna dyrnar fyrir LIV Tiger syrgir móður sína Sjá meira
Birgir Leifur fór vel af stað í Finnlandi Íslenski kylfingurinn fékk sjö fugla á fyrsta degi á GANT mótinu í Finnlandi en mótið er hluti af Áskorendamótaröðinni. 13. ágúst 2015 16:00