Fótbolti

Drengjalandsliðið gerði jafntefli við Grikki

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Strákarnir eru í góðri stöðu í sínum riðli.
Strákarnir eru í góðri stöðu í sínum riðli. mynd/ksí
Strákarnir í U-17 ára landsliðinu gerðu 1-1 jafntefli við Grikkland á Laugardalsvellinum í kvöld.

Leikurinn var liður í undankeppni EM en Ísland er með fjögur stig í sínum riðli, líkt og Danmörk en liðin mætast í lokaumferðinni á Nettó-vellinum í Keflavík á sunnudaginn.

Fylkismaðurinn Kolbeinn Birgir Finnsson kom íslenska liðinu yfir á 50. mínútu en Grikkir jöfnuðu 15 mínútum síðar.

Íslandi dugir jafntefli gegn Dönum til að tryggja sér sæti í milliriðli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×