Golf

Bandaríska liðið sigraði í Solheim Bikarnum eftir magnaða endurkomu

Kári Örn Hinriksson skrifar
Þær bandarísku fagna sögulegum sigri í Þýskalandi í dag.
Þær bandarísku fagna sögulegum sigri í Þýskalandi í dag. Getty
Lokadagur Solheim bikarsins í golfi reyndist gríðarlega dramatískur en áður en einmenningsleikirnir hófust þurfti að klára fjórmenningsleiki sem ekki tókst að klára í gær vegna myrkurs.

Þar gerðist mjög umdeilt atvik í leik þar sem Suzann Pettersen og Charley Hull léku saman á móti Brittany Lincicome og Alison Lee úr frá Bandaríkjunum.

Á 17. holu var Lee að pútta fyrir fugli og sigri á holunni en hún missti púttið og átti rúmlega hálfs meters pútt til þess að jafna leikinn.

Þá gengu þær evrópsku burt frá flötinni og létu eins og þær hefðu gefið Lee púttið sem reyndist þó ekki raunin þegar að hún tók boltan sinn upp án þess að klára holuna.

Við tók mikill ruglingur en dómari dæmdi síðan holuna Evrópuliðinu í vil þar sem Alison Lee hafði ekki klárað holuna, sem verður að teljast mjög slæm íþróttamennska hjá þeim Charley Hull og Suzann Pettersen sem létu klárlega eins og þær hefðu gefið púttið.

Fyrir einmenningsleikina var Evrópuliðið því með 10 vinninga gegn 6 hjá því bandaríska, og því á brattann að sækja fyrir þær síðarnefndu á hinum krefjandi St. Leon Rot velli.

Efldust við mótlætið

Ósanngirnin virtist bara mótivera þær bandarísku fyrir lokasprettinn en þær unnu sér inn átta og hálft stig í einmenningnum á móti aðeins þremur og hálfu hjá þeim evrópsku.

Mögnuð endurkoma því staðreynd en þetta er í fyrsta sinn í sex ár sem Solheim bikarinn fer til Bandaríkjana en ekki Evrópu.

Fyrirliði bandaríska liðsins, Juli Inkster, var að vonum í skýjunum eftir sigurinn en hún segir að mótlætið hafi eflt liðsmenn sína.                                                                                       

Ég þurfti ekki að segja mikið við stelpurnar fyrir lokahringinn, þær voru allar með beiskt bragt í munninum eftir framgöngu Evrópuliðsins í morgun og ég held að ósanngirnin hafi gefið þeim þetta extra sem þurfti til þess að snúa þessu okkur í hag. Ég er mjög stolt af þeim öllum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×