LeBron James: Meira af ást í Cleveland í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. október 2015 17:00 LeBron James og Kevin Love. Vísir/EPA
LeBron James gaf það út í viðtali við ESPN að hann og liðsfélagar hans ætli að gera sitt í því að reyna að koma Kevin Love í stærra hlutverk hjá Cleveland Cavaliers á komandi NBA-tímabili. Kevin Love og LeBron James spiluðu sitt fyrsta tímabil saman með Cleveland Cavaliers á síðustu leiktíð en það endaði ekki vel þegar Love meiddist illa á öxl snemma í úrslitakeppninni. Kevin Love var allt í öllu hjá Minnesota Timberwolves tímabilið á undan en tölurnar hans hrundu þegar hann kom til Cavaliers í fyrra. Hann fór út því að vera með 26,1 stig, 12,5 fráköst og 4,4 stoðsendingar að meðaltali í leik í það að vera með 16,4 stig, 9,7 fráköst og 2,2 stoðsendingar í leik. „Ég held að honum líði betur núna. Hann er búinn að fá eitt ár til að aðlagast og veit betur til hvers er ætlast af honum. Ég býst við stórum hlutum frá honum," sagði LeBron James við ESPN. LeBron James gagnrýndi Love á miðju síðasta tímabili og David Blatt, þjálfari liðsins, setti Love nokkrum sinnum á bekkinn í lokin á jöfnum leikjum. Þeir báðir hafa hinsvegar verið duglegir að tala vel um Love fyrir þetta tímabil og sjá fyrir sér stærra hlutverk fyrir hann á komandi tímabili. „Ég er viss um að hann gerir meira af því sem hann var að gera fyrir síðasta tímabil," sagði James. Kevin Love virtist loksins vera búinn að finna taktinn þegar hann fór út axlarlið eftir átök við Boston-manninn Kelly Olynyk í úrslitakeppninni. Love missti því af því þegar Cavs-liðið fór alla leið í lokaúrslitin. Kevin Love skrifaði pistil í blað leikmannasamtaka NBA-deildarinnar þar sem hann hrósaði liðsfélögum sínum fyrir frammistöðuna í úrslitakeppninni þar sem liðið lék hans. Kevin Love gat yfirgefið Cleveland en ákvað að vera áfram og skrifaði undir nýjan fimm ára og 110 milljón dollara samning við Cleveland Cavaliers í sumar.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira