Russell Westbrook þarf að sjá um þetta næstu daga | Durant aftur meiddur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. nóvember 2015 14:00 Kevin Durant og Russell Westbrook. Vísir/Getty
Kevin Durant verður ekki með Oklahoma City Thunder í NBA-deildinni í körfubolta á næstunni eftir að hann meiddist í heimkomunni til Washington en Durant var mikið meiddust á síðasta tímabili og nýtt tímabil byrjar því ekki gæfulega. Durant er frá Washington og það hefur verið í umræðunni að hann semji við Washington Wizards þegar samningur hans rennur út í sumar. Það voru þó meiðsli kappans sem eignuðu sér fyrirsagnirnar eftir leikinn. Durant var frábær í fyrri hálfleiknum eða þangað til hann meiddist aftan í læri sem þýddi að hann var ekkert með eftir hlé. Durant meiddist þegar hann keyrði að körfunni og lenti illa. Nú er komið í ljós að Durant missir að minnsta kosti af sjö til tíu vikum vegna tognunar aftan í vinstra læri. Kevin Durant var með 28,1 stig, 7,3 fráköst og 3,0 stoðsendingar að meðaltali í fyrstu átta leikjum og það munar því mikið um hann fyrir lið Oklahoma City Thunder. Durant spilaði aðeins 27 af 82 leikjum á síðasta tímabili og þá var það mikið á herðum Russell Westbrook að leiða Thunder-liðið sem Westbrook gerði með glans. Westbrook var með 30,7 stig, 9,1 frákast og 7,7 stoðsendingar að meðaltali í leikjunum án Kevin Durant á síðust leiktíð. Russell Westbrook þarf því aftur að sjá um þetta í næstu leikjum en hann svaraði strax kallinu á móti Washington Wizards þar sem hann var með þrefalda tvennu, skoraði 22 stig, tók 11 fráköst og gaf 11 stoðsendingar. Thunder-liðið spilar fimm leiki á næstu dögum eða leiki á móti 76ers, Celtics, Grizzlies, Pelicans og Knicks. Það má búast við að þessi rúma vika gæti orðið sýning hjá Westbrook eins og var þegar hann fór á kostum í forföllum Durant í fyrra.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira