Losuðu sig við Mario Chalmers til að lækka lúxusskattinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. nóvember 2015 16:15 Mario Chalmers. Vísir/Getty
Mario Chalmers er orðinn leikmaður Memphis Grizzlies í NBA-deildinni en Miami Heat ákvað að senda hann til Memphis. Chalmers og framherjinn James Ennis fara til Memphis Grizzlies í skiptum fyrir þá Beno Udrih og Jarnell Stokes. Mario Chalmers er 29 ára gamall og hefur spilað allan sinn feril með Miami Heat en hann varð NBA-meistari með liðinu 2012 og 2013. Mario Chalmers skrifaði undir nýjan samning við Miami Heat í júlí 2014 en mögulegi skipti á honum hafa verið í umræðunni upp á síðkastið enda eru forráðamenn Miami Heat að reyna að lækka lúxusskatinn. Chalmers var ekki lengur byrjunarliðsmaður eins og á árunum með LeBron James og er bara búinn að spila í 20,0 mínútur í leik. Hann er að skora um helmingi færri stig að meðaltali en á síðasta tímabili. Chalmers var með 5,5 stig og 3,2 stoðsendingar að meðaltali í fyrstu sex leikjum sínum með Miami en er bara búinn að hitta úr 31 prósent skota sinna. Mario Chalmers er ætlað að hrista upp í hlutunum hjá liði Memphis Grizzlies sem hefur ekki staðið undir væntingum í upphafi leiktíðar. Memphis-liðið tapaði meðal annars með 50 stiga mun á móti Golden Stata Warriors og tapaði 5 af fyrstu 8 leikjum sínum. Miami Heat verður sjötta NBA-lið Beno Udrih en hann hefur einnig spilað með San Antonio, Sacramento, Milwaukee, Orlando, New York og svo Memphis Grizzlies. Miami Heat þarf einnig að losna við samning Chris Andersen ætli félagið sér að losna við lúxusskattinn. Það er heldur ekkert öruggt að Beno Udrih spili lengi með Miami áður félagið skiptir til annars félags. Það er því von á flerii hrókeringum hjá Pat Riley á næstunni.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira