Kobe kveður í lok leiktíðar Henry Birgir Gunnarsson skrifar 30. nóvember 2015 07:44 Kobe Bryant. vísir/getty
Kobe Bryant, leikmaður LA Lakers, tilkynnti í nótt að hann muni leggja skóna á hilluna í lok leiktíðar. Hinn 37 ára gamli Bryant er að leika sitt 20. tímabil með LA Lakers og nú er farið að styttast í endalokin hjá honum. Hefur verið beðið eftir þessari tilkynningu frá honum. Kobe skrifaði bréf í nótt sem hét „Kæri körfubolti" þar sem hann tilkynnti um ákvörðun sína. Frumleg leið til þess að tilkynna um ákvörðun sína að skrifa til íþróttarinnar. „Hjartað ræður við átökin sem og hugurinn en líkaminn segir mér að það sé kominn tími til að kveðja," skrifaði Bryant meðal annars en hann er þriðji stigahæsti leikmaðurinn í sögu NBA-deildarinnar. „Það er líka í góðu lagi því ég er tilbúinn að sleppa takinu af þér." Kobe kom beint úr framhaldsskóla í NBA-deildina árið 1996 og vann fimm NBA-meistaratitla með félaginu. Sautján sinnum hefur hann verið valinn í Stjörnuleik deildarinnar. Síðustu þrjú tímabil hafa endað snemma vegna meiðsla og líkaminn getur ekki mikið meir. Kobe hefur verið slakur í vetur og hefur aldrei skotið eins illa og í vetur.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira