Sjáið Curry skora 17 stig á þremur mínútum | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. desember 2015 16:30 DeMarcus Cousins kannar hitastigið á Curry í nótt. Vísir/Getty
Stephen Curry var ekki áberandi framan af leik Golden State Warroirs og Sacramento Kings í NBA-deildinni í nótt en þessi mikli skotmaður tók "örbylgjuofninn" á þetta í lok annars leikhlutans. Curry var enn stigalaus í leiknum þegar aðeins rúmar þrjár mínútur voru til hálfleiks en besti leikmaður NBA-deildarinnar á síðustu leiktíð hafði gefið sex stoðsendingar og tekið níu fráköst. Fyrstu sex skot Curry í leiknum höfðu ekki ratað rétta leið og þar af voru fimm þeirra fyrir utan þriggja stiga línuna. Það leit því allt út fyrir afar rólegan leik hjá besta leikmanni Golden State. Stephen Curry sjóðhitnaði hinsvegar í lok annars leikhluta. Hann byrjaði á því að setja þrist og minnka muninn í 44-47 þegar 3:16 voru til hálfleiks. Tveimur mínútum og 55 sekúndum síðar var hann búinn að skora sitt sautjánda stig í hálfleiknum. Curry hitti úr öllum fimm þriggja stiga skotum sínum á þessum þremur mínútum og skoraði auk þess eina körfu eftir að hafa keyrt upp að körfunni. Sacramento Kings liðið skoraði samtals 11 stig á sama tíma og Curry gerði þessi 17 stig sín. Stephen Curry bætti reyndar bara sex stigum við í seinni hálfleiknum og klikkaði á 9 af 11 skotum sínum fyrir utan þessar ótrúlegu mínútur í lok annars leikhlutans en hann náði þrefaldri tvennu, var með 23 stig, 14 fráköst og 10 stoðsendingar. Hér fyrir neðan má sjá Stephen Curry skora sautján stig á þremur mínútum og á þessu myndbandi sést vel hversu erfitt er að ráða við þennan frábæra leikmann þegar hann hitnar.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira