Sjöundi sigur San Antonio í röð | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. desember 2015 10:42 Leonard fór fyrir San Antonio gegn Minnesota. vísir/afp
Þrettán leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. San Antonio Spurs vann sinn sjöunda leik í röð þegar liðið lagði Minnesota Timberwolves að velli, 83-108. Liðsheildin var sterk hjá San Antonio en sex leikmenn liðsins skoruðu 10 stig eða fleiri í leiknum. Kawhi Leonard var þeirra stigahæstur með 19 stig en Tony Parker kom næstur með 14 stig. Zach LaVine skoraði mest fyrir Minnesota, eða 17 stig, en Úlfarnir töpuðu frákastabaráttunni í leiknum 47-31. San Antonio hefur unnið 25 af 30 leikjum sínum í vetur og situr í 2. sæti Vesturdeildarinnar á eftir Golden State Warriors sem vann Utah Jazz í nótt, 103-85. Meistararnir hafa unnið 27 leiki í vetur og aðeins tapað einum. Skvettubræðurnir Klay Thompson og Stephen Curry voru atkvæðamestir hjá Golden State í nótt en þeir skoruðu samtals 36 stig (Thompson 20 og Curry 16). Draymond Green átti einnig hörkuleik með 15 stig, níu fráköst og sex stoðsendingar. Oklahoma City Thunder rúllaði yfir Los Angeles Lakers, 85-120, á útivelli. Þetta var sjötti sigur Þrumunnar á Lakers í röð. Oklahoma var mun sterkari aðilinn í leiknum, gegn Lakers-liði sem hefur aðeins unnið fimm leiki í vetur. Russell Westbrook var stigahæstur í liði Oklahoma með 23 stig en hann tók einnig átta fráköst og gaf átta stoðsendingar. Kevin Durant kom næstur með 21 stig. Kobe Bryant skoraði 19 stig fyrir Lakers en hann hitti aðeins úr sjö af 22 skotum sínum í leiknum.Úrslitin í nótt: Minnesota 83-108 San Antonio Golden State 103-85 Utah LA Lakers 85-120 Oklahoma Phoenix 96-104 Denver New Orleans 115-89 Portland Milwaukee 113-100 Philadelphia Atlanta 107-100 Detroit Brooklyn 118-119 Dallas Washington 100-91 Memphis Orlando 104-101 Houston Indiana 106-108 Sacramento Cleveland 91-84 NY Knicks Charlotte 89-102 BostonSteph Curry fer illa með Derrick Favors LeBron James og Kristpas Porzingis áttust við í Cleveland í nótt Flottustu tilþrif næturinnar
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira