Skoðun

Ávinningur hönnunar

Þórey Vilhjálmsdóttir skrifar
Ímyndaðu þér heim þar sem þú skildir alltaf bréfin frá skattinum, þyrftir ekki fara á fjölda staða til að safna upplýsingum fyrir greiðslumatið, þyrftir ekki að vera með samviskubit þegar þú notar heilbrigðiskerfið og ekki að hafa áhyggjur af ferðaþjónustu fatlaðra. Allt eru þetta vandamál sem leysa mætti með aðferðafræði hönnunar því hönnun afmarkast ekki við eina vöru, einn stól eða eina flík. Framsækin fyrirtæki og stjórnvöld eru í auknum mæli farin að nýta sér hugmyndafræði hönnunar – þar sem leidd eru saman þverfagleg teymi til stefnumótunar, vöruþróunar og lausna vandamála.

Skotland er eitt margra landa sem þekkja mátt þessarar hugmyndafræði en þar stendur nú yfir verkefni þar sem hið breska „Design council“ vinnur með stjórnvöldum að því að gera stjórnsýsluna skilvirkari og notendamiðaðri. Hönnuðir vinna með opinberum starfsmönnum að því að skilgreina þjónustuna út frá fólkinu sjálfu, notendunum, með því að setja sig í spor þeirra og læra þannig að hugsa þjónustuna út frá þeim – en ekki stofnuninni. Fyrir utan að lækka kostnað og auka starfsánægju, þá ýtir þessi aðferð undir valddreifingu og gegnumgangandi lausnamiðaða hugsun.

En fjárhagslega hliðin skiptir ekki síður máli. Samkvæmt rannsókn „Design council“ á markvissu samstarfi hönnuða, fyrirtækja og stjórnsýslu skilaði hvert pund, sem fyrirtæki vörðu í hönnun, 20 pundum í auknar tekjur, fjórum pundum í aukinn hagnað og fimm punda aukningu útflutningstekna. Í opinbera geiranum skilaði hvert pund skilvirkari rekstri um sex pund, sem er gríðarlegt hagræði fyrir stjórnsýsluna. Þessar tölur sanna það að aðferðir hönnunar mætti nýta enn frekar til þess að skila betri rekstri, þjónustu og hagræðingu. Hönnun tengir saman ólíkar hugmyndir, aðferðir og stefnur og nær að láta þær skila betri árangri sameiginlega en hver í sínu lagi.

Fyrirtæki og stofnanir á Íslandi ættu að vera opin fyrir því að nýta sér þessa aðferðafræði en einhver hafa nú þegar innleitt slík verkefni. Hönnun er ört vaxandi atvinnugrein á Íslandi og er gróflega áætlað að greinin velti um 20 milljörðum á ári. Samt sem áður er íslenski hönnunargeirinn aðeins að slíta barnskónum og mun umfang greinarinnar án efa aukast töluvert á næstu árum. HönnunarMars er nú haldinn í sjöunda sinn og er hægt að sækja nær 100 viðburði sem tengjast hönnun á næstu dögum. Ég hvet alla til þess að kynnast þessum fjölbreyttu verkefnum og hugmyndum – sem auðga og bæta samfélag okkar til muna.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×