Skæruliðar Íslamska ríkisins drápu fimmtán börn í Bagdad Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 20. júlí 2015 07:00 Bílsprengja Íslamska ríkisins lagði byggingar í rúst og varð níutíu að bana í Írak. nordicphotos/afp
Liðsmenn Íslamska ríkisins felldu að minnsta kosti níutíu Íraka, þar af fimmtán börn, þegar bílsprengja sprakk á götumarkaði í Bagdad, höfuðborg Íraks, á laugardaginn. Heimamenn í Bagdad voru að fagna Eid al-Fitr-hátíðinni, sem markar lok ramadan, föstumánaðar múslima. Hátíðin er ein sú stærsta í íslam. „Fólk brann inni í bílum sínum og á götum úti því engir sjúkra- eða slökkviliðsbílar náðu á svæðið,“ sagði Muthanna Saadoun, 25 ára götusópari, við íraska fjölmiðla. Mjög þröngt var á götumarkaðinum sem hindraði aðkomu sjúkrabíla. „Eldur, lík, slasaðir, konur með grátandi börn,“ sagði Salem Abu Moqtada, 34 ára grænmetissali, þegar hann lýsti svæðinu. Auk þeirra níutíu sem féllu slösuðust 120 í sprengingunni sem varð í hverfi sjíamúslima, sem eru í minnihluta í Írak. Forsætisráðherra Íraks, Haider al-Abadi, fordæmdi árásina og kallaði hana fyrirlitlegan glæp Íslamska ríkisins. Einnig dró til tíðinda hjá Íslamska ríkinu í Sádi-Arabíu á laugardag. Þarlend yfirvöld tilkynntu um handtökur um fjögur hundruð liðsmanna Íslamska ríkisins á síðustu vikum í landinu og sögðu að þannig hefði verið komið í veg fyrir hryðjuverkaárásir þeirra.
Mið-Austurlönd Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira