Skvettubræður skoruðu 60 stig og Green náði þriðju þrennunni í röð Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. janúar 2016 07:00 Stephen Curry sækir að körfu Charlotte í nótt. vísir/getty
Golden State Warriors heldur áfram að drottna yfir NBA-deildinni í körfubolta en meistararnir unnu Charlotte Hornets á heimavelli sínum í nótt, 111-101. Golden State er nú búið að vinna alla 17 heimaleiki sína á leiktíðinni og síðustu 35 heimaleiki ef seinasta leiktíð er tekin með. Golden State er í heildina búið að vinna 32 leiki á þessari leiktíð og tapa aðeins tveimur. Draymond Green varð aðeins annar leikmaður Golden State í sögunni í nótt sem nær þrennu þrisvar sinnum í röð, en kraftframherjinn magnaði skoraði 13 stig, tók 15 fráköst og gaf 10 stoðsendingar. Skvettubræður; Stephen Curry og Klay Thompson, skoruðu báðir 30 stig og voru samtals 11 af 21 fyrir utan þriggja stiga línuna. Cleveland Cavaliers er einnig mjög sterkt á heimavelli en það vann Toronto Raptors í nótt, 122-100 og er í heildina búið að vinna 15 heimaleiki sína af 16 á tímabilinu. Það var mikið liðsframlag hjá Cleveland í nótt þar sem allt byrjunarliðið skoraði yfir 10 stig og þrír af fimm skoruðu yfir 20 stig. Kyrie Irving var stigahæstur með 25 stig auk þess sem hann gaf átta stoðsendingar og tók sex fráköst en LeBron James skoraði 20 stig og gaf sjö stoðsendingar. Sacramento Kings gerði sér svo lítið fyrir og vann Oklahoma City Thunder á útivelli, 116-104, þar sem DeMarcus Cousins fór á kostum og skoraði 33 stig og tók 19 fráköst. OKC var án Kevins Durants en Sergi Ibaka var stigahæstur heimamanna með 25 stig. Russell Westbrook skoraði 17 stig, gaf 15 stoðsendingar og tók átta fráköst.Úrslit næturinnar: Cleveland Cavaliers - Toronto Raptors 122-100 Philadelphia 76ers - Minnesota Timberwolves 109-99 Brooklyn Nets - Boston Celtics 94-103 Detroit Pistons - Orlando Magic 115-89 Miami Heat - Indiana PAcers 103-100 Milwaukee Bucks - San Antonio Spurs 98-123 OKC Thunder - Sacramento Kings 104-116 Utah Jazz - Houston Rockets 91-93 Portland Trail Blazers - Memphis Grizzlies 78-91 Golden State Warriors - Charlotte Hornets 111-101Staðan í deildinni.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira