Spieth í vandræðum á fyrsta hring Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. febrúar 2016 09:53 Fátt gekk upp hjá Jordan Spieth í gær. Vísir/Getty
Jordan Spieth fór ekki vel af stað á PGA-mótinu Northern Trust Open sem hófst í Kaliforníu í gær. Hann lék á 79 höggum á fyrsta hring og er sextán höggi á eftir fremsta manni, Kólumbíumanninnum Camilo Villegas. Spieth fékk átta skolla á hringnum sínum og lauk honum með því að fá skramba á átjándu holu. „Ég hef nokkrum sinnum spilað á 80 höggum á PGA-móti,“ sagði Spieth eftir hringinn í gær en hann hefur þó aldrei byrjað verr á PGA-móti en í gær. „Ég ímynda mér að svona lagað hendi mann nokkrum sinnum á ferlinum. Það er bara óheppilegt þegar það gerist.“ Norður-Írinn Rory McIlroy er að keppa á sínu fyrsta PGA-móti í ár og hann spilaði vel í gær. Hann kom í hús á 67 höggum. Bein útsending frá mótinu hefst á Golfstöðinni klukkan 22.00 í kvöld.
Golf Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Besta tenniskona heims tekur þátt í nýrri „Baráttu kynjanna“ Sport Þurfti að kaupa nýjan iPhone fyrir alla í liðinu Fótbolti Ógnaði leikmanni Tottenham með byssu út á götu Enski boltinn Sjáðu sigurmark Liverpool á móti Real Madrid og mörkin hjá Arsenal í Prag Fótbolti Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Fótbolti Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Fótbolti Liverpool vann risaslaginn Fótbolti Fleiri fréttir Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Gunnlaugur Árni í níunda sæti á heimslista Barnabarn Donalds Trump keppir á LPGA-mótaröðinni Mun líklegast aldrei komast yfir þetta Jack Nicklaus fær sex milljarða í meiðyrðamáli Íslenski Tígurinn vann æsispennandi mót í Mississippi Uppfyllti óskina og fékk soninn í fangið á átjándu Rory McIlroy vill verða fyrirliði Ryder-liðs Evrópu Tiger Woods í enn eina bakaðgerðina Segir að stuðningsmenn Bandaríkjanna hafi farið yfir strikið Sló golfhögg með krókódíl rétt fyrir aftan sig „Heimskulegt og asnalegt hjá mér“ Sjá meira