Treyja Herra stóra skots hengd upp í rjáfur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. febrúar 2016 08:05 Billups-fjölskyldan við athöfnina í nótt. vísir/afp
Treyja Chauncey Billups var hengd upp í rjáfur við hátíðlega athöfn í The Palace of Auburn Hills, heimavelli Detroit Pistons, í nótt. Billups er í miklum metum hjá stuðningsmönnum Detroit en hann var í lykilhlutverki þegar liðið vann NBA-meistaratitilinn árið 2004 eftir 4-1 sigur á Los Angeles Lakers í úrslitaeinvíginu. Billups er annar leikmaðurinn úr meistaraliði Detroit frá 2004 sem fær treyjuna sína hengda upp í rjáfur en í síðasta mánuði varð Ben Wallace þess heiðurs aðnjótandi. Eftir að hafa leikið með fjórum liðum á fyrstu fimm árum sínum í NBA samdi Billups við Detroit sumarið 2002. Billups, sem fékk viðurnefnið Herra stóra skot, lék í sex ár með Detroit en á þeim tíma komst liðið sex sinnum í úrslit Austurdeildarinnar, tvisvar í lokaúrslitin og varð einu sinni meistari. Billups var valinn verðmætasti leikmaður lokaúrslitanna þegar Detroit varð meistari 2004. Billups sneri aftur til Detroit fyrir tímabilið 2013-14 en spilaði aðeins 19 leiki með liðinu vegna meiðsla sem plöguðu hann á síðustu árum ferilsins.Myndband frá athöfninni má sjá hér að neðan.
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira