Curry jafnaði þristamet Korver í nótt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. febrúar 2016 10:00 Curry lætur vaða. vísir/getty
Stephen Curry, leikmaður Golden State Warriors, jafnaði í nótt met Kyle Korver en þeir hafa nú skorað þriggja stiga körfu í flestum leikjum í NBA-deildinni í röð. Curry setti niður sex þriggja skot í 12 tilraunum þegar Golden State vann 112-118 sigur á Miami Heat í nótt en hann hefur nú skorað a.m.k. eina þriggja stiga körfu í 127 leikjum í röð. Hann deilir metinu með Korver sem leikur með Atlanta Hawks. Curry mistókst síðast að skora þriggja stiga körfu þegar Golden State tapaði fyrir San Antonio Spurs, 100-113, 11. nóvember 2014. Curry var kaldur í þeim leik og brenndi af öllum sjö þriggja stiga skotum sínum. Umræddur leikur gegn San Antonio var algjör undantekning frá reglunni hjá Curry en þessi magnaða skytta hefur skorað a.m.k. eina þriggja stiga körfu í 202 af síðustu 203 leikjum sínum. Curry heldur áfram að setja ný viðmið í þriggja stiga skotum en hann er á góðri leið með að slá þristametið sem hann setti á síðasta tímabili. Þá setti Curry niður 286 þrista en hann er þegar kominn með 266 í vetur en Golden State á enn eftir að leika 26 leiki í deildakeppninni. Curry reynir flest þriggja stiga skot að meðaltali í leik í NBA (10,8) og hittir úr flestum (4,9). Þá er skotnýtingin frábær, eða 45,5%. Aðeins tveir leikmenn eru með betri þriggja stiga nýtingu á tímabilinu en Curry; J.J. Redick hjá Los Angeles Clippers (48,1%) og Kawhi Leonard hjá San Antonio Spurs (48,0%).
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira