Liverpool áfram eftir jafntefli á Old Trafford | Sjáðu mörkin Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. mars 2016 22:00 Coutinho fagnar markinu. vísir/getty
Liverpool er komið áfram í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar eftir jafntefli gegn Manchester United, 1-1, í seinni leik liðanna á Old Trafford í kvöld. Liverpool var með 2-0 forskot eftir fyrri leikinn þar sem lærisveinar Jürgen Klopp voru með mikla yfirburði. Samanlagður sigur Liverpool, 3-1. Anthony Martial fiskaði vítaspyrnu þegar Nathaniel Clyne braut á honum eftir ríflega hálftíma leik og skoraði hann úr spyrnunni sjálfur, 1-0. Þá vantaði United aðeins eitt mark til að koma sér í framlengingu eða tvö mörk til að komast áfram. Philippe Coutinho var þó fljótur að drepa allar vonir heimamanna. Á síðustu mínútu fyrri hálfleiks skoraði Brasilíumaðurinn frábært mark eftir að fífla Varela í bakverði United upp úr skónum. Hann komst upp að endamörkum og lyfti boltanum snyrtilega yfir De Gea, 1-1. Þrátt fyrir að þurfa þrjú mörk í seinni hálfleik var United-liðið varla líklegt til að skora eitt mark og því náði Liverpool nokkuð auðveldlega þeim úrslitum sem liðið þurfti. Liverpool áfram eftir fyrsta Evrópueinvígi þessara miklu erkifjenda, 3-1.Anthony Martial kemur United í 1-0 (1-2): Philippe Coutinho jafnar í 1-1 (1-3):
Fótbolti Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Fleiri fréttir Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Sjá meira