Kobe Bryant gerir grín að gamla Kobe í nýrri Apple-auglýsingu | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. apríl 2016 12:45 Kobe Bryant. Vísir/Getty
Nú fer hver að verða síðastur að sjá Kobe Bryant spila í NBA-deildinni í körfubolta en Kobe spilaði þriðja síðasta leikinn á ferli sínum í nótt. Kobe átti fínan leik og skoraði 35 stig á 27 mínútum á móti Houston Rockets en það kom þó ekki í veg fyrir 20 stiga tap. Lokaleikir Kobe Bryant verða á móti Oklahoma City Thunder í kvöld og Utah Jazz á miðvikudagskvöldið. Kobe Bryant hefur fyrir löngu sætt sig við að þessi kveðjuferð hans snúist um virðingu fólks fyrir hans ferli og hans afrekum en ekki um að safna sigurleikjum sem hafa verið að skornum skammti hjá Lakers á þessari leiktíð. Kobe Bryant var líka alveg tilbúinn að gera grín að sjálfum sér í nýrri auglýsingu fyrir Apple TV sem er eitthvað sem erfitt var að sjá fyrir sér fyrir nokkrum árum. Auglýsingin hjá Apple heitir „Father Time" upp á enska tungu eða „Árin hafa liðið". Á auglýsingunni sést Kobe Bryant tala við Michael B. Jordan sem á að fara að leika Kobe í skáldaðri mynd um körfuboltaferil Kobe. Kobe Bryant kallar fram myndband með sér á Apple TV þegar hann var ungur og nánast óstöðvandi inn á vellinum en Michael B. Jordan segir honum þá frá því að myndin eigi að ná yfir allan hans feril. Michael B. Jordan segist eiga að leika Kobe Bryant þegar hann er orðinn „gamall" og hann muni nota andlitsfarða og aðra aukahluti til að ná því. Að því sögðu þá kallar Michael B. Jordan fram myndina The Curious Case of Benjamin Button á Apple TV. KObe Bryant er ekki sáttur og vísar Jordan á dyr. Það er hægt að sjá þessa auglýsingu hér fyrir neðan.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira