Cleveland og San Antonio í lykilstöðu | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. apríl 2016 11:02
Þrír leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt. LeBron James og félagar í Cleveland eru komnir með annan fótinn í undanúrslit Austurdeildarinnar eftir 91-101 sigur á Detroit Pistons á útivelli. Cleveland leiðir einvígið 3-0 og þarf aðeins einn sigur í viðbót til að tryggja sig áfram. Kyrie Irving var stigahæstur í liði Cleveland með 26 stig en James og Kevin Love skoruðu báðir 20 stig. James tók einnig 13 fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Kentavious Caldwell-Pope skoraði mest fyrir Detroit, eða 18 stig. Boston Celtics minnkaði muninn í 2-1 í einvíginu við Atlanta Hawks með átta stiga sigri, 111-103, á heimavelli í nótt. Isiah Thomas setti persónulegt met og skoraði 42 stig fyrir Boston sem getur jafnað metin í einvíginu á sunnudaginn. Jeff Teague skoraði 23 stig fyrir Atlanta. Kawhi Leonard, nýkjörinn varnarmaður ársins í NBA, skoraði 32 stig þegar San Antonio Spurs vann 87-96 sigur á Memphis Grizzlies á útivelli. Með sigrinum komst San Antonio í 3-0 í einvíginu og þarf því bara einn sigur til viðbótar til að komast áfram í undanúrslitin. LaMarcus Aldridge skoraði 16 stig og tók 10 fráköst fyrir San Antonio. Hjá löskuðu liði Memphis, sem var aðeins með 10 leikfæra menn, var Zach Randolph atkvæðamestur með 20 stig og 11 fráköst.Úrslitin í nótt: Detroit 91-101 Cleveland Boston 111-103 Atlanta Memphis 87-96 San AntonioCleveland-Detroit í draugsýn Isiah Thomas var í miklu stuði Kawhi Leonard var öflugur gegn Memphis
NBA Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Körfubolti Fleiri fréttir Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Sjá meira