Golden State hélt sér á lífi í rimmunni gegn OKC | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. maí 2016 07:45
Golden State Warriors hélt einvíginu gegn Oklahoma City Thunder í úrslitum vesturdeildar NBA á lífi í nótt með níu stiga sigri, 120-111. Staðan í rimmu liðanna er 3-2 fyrir OKC. Golden State byrjaði leikinn vel og vann á endanum þrjá leikhluta af fjórum og sigldi góðum sigri í höfn gegn OKC-liðinu sem var búið að vinna tvo í röð fyrir leikinn í nótt. Steph Curry skoraði 31 stig fyrir Golden State, tók sex fráköst og gaf sex stoðsendingar. Hann hitti úr þremur þristum af átta og setti niður öll tíu vítaskotin sín. „Mér fannst hann líta út fyrir að vera svona 91 prósent heill í leiknum,“ sagði Steve Kerr, þjálfari Golden State, um aðalmanninn sinn sem hefur verið meiddur í úrslitakeppninni. Kevin Durant og Russell Westbrook skoruðu samtals 71 stig. Durant setti 40 stig í nótt en Westbrook var með 31 stig, átta stoðsendingar og sjö fráköst. Næsti leikur liðanna fer fram í Oklahoma City en þar fær OKC annað tækifæri til að komast í lokaúrslitin og senda meistarana í sumarfrí.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira