Mögnuð endurkoma meistaranna fullkomnuð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. maí 2016 06:46 Klay Thompson lyftir bikarnum í nótt. Vísir/Getty
Golden State Warriors tryggði sér í nótt sigur í Vesturdeild NBA-deildarinnar með mögnuðum 96-88 sigri á Oklahoma City Thunder. NBA-meistararnir komust þar með í lokaúrslit úrslitakeppninnar annað árið í röð og tókst það sem afar fá lið hafa afrekað í sögu deildarinnar, að vinna rimmu í úrslitakeppninni eftir að hafa lent 3-1 undir. Golden State mætir LeBron James og félögum í Cleveland Cavaliers í úrslitunum, rétt eins og í fyrra en þá vann Golden State sinn fyrsta meistaratitil í 40 ár eftir 4-2 sigur í rimmunni.Besti leikmaður deildarinnar, Steph Curry, átti frábæran leik í nótt en hann skoraði 36 stig og setti niður sjö þriggja stiga körfur. Alls skoraði hann 32 þriggja stiga körfur í rimmunni allri sem er met í sjö leikja seríu í úrslitakeppninni. Þegar rúm mínúta var til leiksloka og staðan 90-86, Golden State í vil, braut Serge Ibaka á Curry utan þriggja stiga línunnar. Curry setti niður öll þrjú vítin og innsiglaði svo endanlega sigurinn með þriggja stiga körfu stuttu síðar. Klay Thompson var nokkuð lengi að hitna í leiknum í nótt eftir magnaða frammistöðu í síðasta leik, er hann skoraði 41 stig í ótrúlegum sigri Golden State í leik sex í rimmunni. Hann klikkaði á sjö fyrstu skotum sínum í leiknum í nótt en komst svo í gang og skoraði alls 21 stig í leiknum, þar af átján utan þriggja stiga línunnar. Alls tíu liðum hefur nú tekist að vinna rimmu í úrslitakeppni NBA-deildarinnar eftir að hafa lent 3-1 undir.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira