Hér að neðan verður farið yfir atriði úr síðasta þætti Game of Thrones, allri þáttaröðinni og mögulegum atriðum í næsta og síðasta þætti þáttaraðarinnar.
Þeir sem vilja ekki vita meira ættu að hætta hér. Annars kemur Höskuldur og segir þér hvað gerist!
Melisandre er án efa í miklum vandræðum, eftir að Ser Davos komst að því að hún lét brenna Shireen, dóttur Stannis, í síðustu þáttaröð. Líkurnar á því að íbúar Kings Landing séu í miklum vandræðum jukust til muna og Theon og Yara Greyjoy virðast hafa ferðast um söguheim Game of Thrones á hraðbátum.
Orusta Jon Snow og Ramsay Bolton var mjög flott og við munum öll syrgja Wun Wun, risann góðláta. Ég saknaði þó þess að sjá Ghost, úlf Jon Snow, hann hefur nánast ekkert sést í þáttaröðinni. Ég hefði óskað þess að hann hefði verið látinn drepa Ramsay en ekki hundarnir.
Viðkvæmir ættu kannski ekkert að vera að skoða myndefnið hér að neðan. Reyndar, ef spoilervörnin hér að ofan virkar af einhverju viti, þá væru þið ekki að lesa þetta nema þið hefðuð þegar séð þáttinn.
Þar voru þær rifnar úr fötunum og látnar flýja inn í nærliggjandi skóg. Þær fengu nokkurra tíma forskot og síðan elti Ramsay þær uppi með hjálp tíkanna sinna. Ef stúlkurnar „stóðu sig vel“ og úr varð mikill eltingarleikur, nauðgaði hann þeim og drap þær. Ef þær stóðu sig ekki vel nauðgaði hann þeim samt og fláði þær.
Tíkurnar eru allar nefndar í höfuðið á stúlkum sem höfðu staðið sig vel. Grey Jeyne, Helicent, Jez, Alison, Kyra, Maude, Red Jeyne, Sara og Willow.
Smá hliðarskref: Ramsay var leikinn af breska leikaranum Iwan Rheon, sem einnig er tónlistarmaður og hægt er að hlusta á nokkur lög eftir hann hér á Youtube.
I'm very touched by all your lovely messages....and very glad people can differentiate me from the character. Thank you
— Iwan Rheon (@iwanrheon) June 21, 2016
Sjá einnig: Hvað stóð í bréfinu og hver fékk það?
Ég ætla aðeins að fara yfir hver Littlefinger er og hverja hann hefur svikið í gegnum tíðina. Sérstaklega í þáttunum þar sem saga hans er ekki alveg sú sama og í bókunum.
Baelish ættin var stofnuð af málaliða frá Braavos, langafa Littlefinger, en afi hans byggði svo kastala á mjög litlu yfirráðasvæði á skaga sem kallast The Fingers. Kastalinn ber ekkert nafn en hægt er að finna hann á korti hér. (Beint vestur af Braavos) Í raun stjórnaði Littlefinger einu litlu þorpi í the Vale og var hann því undir Jon Arryn, sem stjórnaði Vale.
Þegar hann var átta ára gamall var hann sendur til Riverrun þar sem hann kynntist systrunum Catelyn og Lysu Tully, sem við könnumst nú þegar við. Það var bróðir þeirra Edmure, sem kallaði Petyr fyrst nafninu Littlefinger. Petyr varð yfir sig ástfanginn af Catelyn sem gat ekki verið meira sama um hann. Lysa var hins vegar ástfangin af Petyr en honum var alveg sama um hana.
Catelyn átti að giftast Brandon Stark, eldri bróður Eddard, og skoraði Petyr því á hann í einvígi. Brandon sigraði Petyr auðveldlega og drap hann næstum því í einvíginu. Petyr var sendur aftur til Fingranna með skömm.
Brandon var þó myrtur af Aerys Targaryen og Catelyn og Eddard giftust þess í stað. Lysa giftist Jon Arryn. Petyr notaði sér tilfinningar Lysu til þess að hækka sig hægt og rólega í tign, en á endanum tók Jon Arryn Petyr með sér til Kings Landing. Jon varð „hand of the king“ og stjórnaði í raun konungsríkjunum sjö og Petyr stjórnaði fjármálum krúnunnar.
Hann keypti fjölda vændishúsa í Kings Landing og rak umfangmikið net njósnara. Petyr varð fljótt einn af valdamestu mönnum Westeros en fáir virtust taka eftir því. Nema geldingurinn Varys.
Í fyrsta þætti Game of Thrones fékk Catelyn bréf frá systur sinni. Jon Arryn var dáinn og Robert Baratheon var kominn til Winterfell til að fá Eddard til að taka við stjórntaumunum í konungsríkjunum sjö. Eddard ætlaði sér ekki suður til Kings Landing þar til hann og Catelyn lásu bréfið frá Lysu.
Hún sagðist sannfærð um að einhverjir í Lannister ættinni hefðu eitrað fyrir Jon Arryn og ákváðu þau hjón að fara til Kings Landing og komast til botns í málinu og til þess að komast að því hver kastaði Bran úr turninum svo hann lamaðist.
Eddard og Catelyn voru sannfærð um að Petyr væri þeim hliðhollur. Það fór svo þannig að Petyr stjórnaði Eddard eins og peði og leiddi hann á sömu braut og Jon Arryn hafði farið. Það er að Eddard komst að því að börn Robert Baratheon væru í rauninni ekki börnin hans, heldur börn Jamie Lannister. Hann og Cersei systir hans væru elskuhugar. Eddard ætlaði að koma Stannist Baratheon, bróður Robert, til valda þegar Robert dó.
Petyr sveik Eddard hins vegar og lét drepa alla menn hans. Það endaði svo með því að Eddard var tekinn af lífi.
Næst sveik Petyr Lannister ættina þegar hann hjálpaði Olennu Tyrell að eitra fyrir Joffrey. Petyr lét þó líta út fyrir að Sansa og þáverandi eiginmaður hennar Tyrion Lannister hefðu eitrað fyrir konunginum.
Sansa og Petyr fóru því næst til The Vale þar sem þau hittu fyrir Lysu Arryn. Hún viðurkenndi að hafa eitrað fyrir eiginmanni sínum Jon, að skipun Petyr, og Lysa vildi giftast Petyr. Þau giftu sig og Petyr henti henni út um Mánadyrnar svokölluðu.
Eftir að hafa myrt Lysu og tekið völdin í Vale, sendir Petyr Sönsu greyið aftur til Winterfell, þar sem hún er látin giftast Ramsay Bolton. Eins og við vitum var það ekki hamingjusamt hjónaband.
Um leið og Sansa fer norður til Winterfell, fer Petyr aftur til Kings Landing. hann segir Cersei að hún sé í Winterfell til að giftast Ramsay og að Bolton ættin hafi svikið krúnuna. Petyr og Cersei gera samkomulag um að hann noti her sinn í Vale til þess að sigra Bolton ættina og í staðinn fær hann Winterfell og norðrið.
Nú virðist hann hafa beðið þar til Jon og Ramsay voru svo til gott sem búnir að þurrka hvorn annan út. Þá kom Petyr „til bjargar“. Ég tel nánast engar líkur á því að Littlefinger muni svo bara óska þeim Jon og Sönsu góðs gengis og fara aftur heim.
Jon Snow er ekki lögmætur erfingi Winterfell og eftir því sem flestir íbúar söguheims Game of Thrones vita er Sansa eina Stark barnið sem enn er lifandi. Arya og Bran eru auðvitað lifandi, en þau eru bæði talin vera látin.
Mitt gisk er að Littlefinger mun reyna að þvinga Sönsu í hjónaband og þannig taka við stjórntaumunum í Winterfell og í norðrinu. Hingað til hefur hann svikið nánast alla sem hann hefur komist í tæri við og af hverju ætti hann að hætta núna. Það er eiginlega enginn sem stendur í vegi fyrir honum.
Þá er einnig líklegt að Bran, Meera og Benjen komi að veggnum. Fyrir nokkrum vikum fórum við yfir hvernig það gæti gert hinum ódauðu kleift að hefja innrás sína í Westeros.
En eins og svo oft áður þá eru kenningar um Game of Thrones líklega byggðar á sandi.