Dani dæmdur fyrir tengsl við ISIS Atli Ísleifsson skrifar 22. júní 2016 21:19 Talið er að 125 Danir hið minnsta hafi gengið til liðs við ISIS í Sýrlandi og Írak á síðustu árum. Vísir/AFP
Dómstóll í Kaupmannahöfn hefur fundið 24 ára eiganda pizzustaðar sekan af því að tengjast hryðjuverkasamtökunum ISIS og haft í hyggju að fremja hryðjuverk. Dómurinn er sá fyrsti sinnar tegundar í Danmörku. Í frétt SVT segir að saksóknari fari fram á sex ára dóm og að maðurinn, sem sé danskur og tyrkneskur ríkisborgari, verði sviptur dönskum ríkisborgararétti sínum og vísað úr landi eftir að hafa afplánað dóm sinn. Í dómnum kemur fram að maðurinn hafi tekið virkan þátt í stríðs- og vopnaþjálfun á vegum ISIS, en á meðal sönnunargagna eru ljósmyndir þar sem maðurinn situr fyrir með riffil. Sumarið 2013 ferðaðist maðurinn í tvígang til Sýrlands, um Tyrkland, og dvaldi fyrst í tíu daga og síðar heilan mánuð áður en hann hélt aftur til Danmerkur. Maðurinn hefur hafnað því að hafa barist með hryðjuverkahópnum en viðurkennir að hafa starfað fyrir þá sem kokkur og bakari. Talið er að 125 Danir hið minnsta hafi gengið til liðs við ISIS í Sýrlandi og Írak á síðustu árum. Að minnsta kosti 27 þeirra hafa látið lífið.
Hryðjuverk í Evrópu Mið-Austurlönd Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira