Magnús Þór aftur í Skallagrím Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júlí 2016 16:08 Magnús Þór Gunnarsson. Vísir/Vilhelm
Magnús Þór Gunnarsson er hættur með Keflavík og mun spila með nýliðum Skallagríms í Domino´s deild karla í körfubolta á næsta tímabili. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Körfuknattleiksdeild Skallagríms. Magnús Þór er annar reynsluboltinn sem semur við Skallagríms á stuttum tíma en liðið hafði áður samið við Darrell Flake. Það er ekki langt síðan að Magnús Þór var síðast í Skallagrími því hann lék með liðinu seinni hluta 2014-15 tímabilsins. Hann hefur einnig spilað með Grindavík og Njarðvík en er Keflvíkingur og hefur spilað stærsta hluta ferils síns þar. Magnús var með Keflavíkurliðinu á síðasta tímabili og bjuggust flestir við því að hann myndi klára feril sinn með Keflavík en svo er ekki. „Engum blöðum er um það að fletta að hér er um gríðarlega öflugan leikmann að ræða og er mikill fengur fyrir Skallagrímsliðið. Magnús hefur leikið fjölda stórleikja og unnið fjöldann allan af titlum á löngum og glæsilegum ferli," segir í fréttatilkynningu frá Körfuknattleiksdeild Skallagríms. Magnús Þór Gunnarsson var með 10,0 stig, 2,2 fráköst og 1,8 stoðsendingar að meðaltali á 20,4 mínútum með Keflavík í Domino´s deildinni á síðasta tímabili. „Hann mun því bæta við mikilli reynslu og sigurhefð í ungt Skallagrímsliðið sem hefur nú bætt við sig tveimur gæða leikmönnum með mikla reynslu í þeim Magnúsi Þór og Darrell Flake," segir ennfremur í fréttatilkynningunni. Magnús Þór lék ellefu leiki með Skallagrím í Domino´s deildinni 2014-15 og var þá með 15,0 stig og 2,7 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Dominos-deild karla Mest lesið Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Íslenski boltinn Í beinni: Vestri - Fram | Úrslitaleikur undir Íslenski boltinn „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Fótbolti Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? Fótbolti Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Körfubolti Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Handbolti „Nýtti reynsluna úr vindinum heima til að halda þolinmæði“ Golf „Hrædd um að við séum að dragast aftur úr“ Fótbolti Fleiri fréttir Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Sjá meira