Innlent

Formaður VG: Fjarri því að vera boðað afnám verðtryggingar

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Katrín segir að svo líti út fyrir að boðaðar aðgerðir ríkistjórnarinnar þýði að fólk með háar tekjur fái mestan skattaafslátt.
Katrín segir að svo líti út fyrir að boðaðar aðgerðir ríkistjórnarinnar þýði að fólk með háar tekjur fái mestan skattaafslátt. Vísir/GVA
„Við fyrstu sýn er þetta fjarri því að vera afnám verðtryggingar sem búið var að boða að yrði kynnt,“ segir Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna um væntanlegt frumvarp um takmörkun á svokölluðum Íslandslánum. Hún segir jafnframt að svo líti út fyrir að boðað frumvarp um stuðning við kaup á fyrstu fasteign nýtist þeim best sem hæstar hafi tekjur.

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kynntu nýtt frumvarp til laga um stuðning við kaup á fyrstu fasteign í Hörpu fyrir stundu. Þá var einnig boðuð takmörkun fjörutíu ára verðtryggðra jafngreiðslulána, svonefndra Íslandslána. Almennt verður ekki heimilt að taka slíkt lán til lengri tíma en 25 ára.

Um tillögurnar sem kynntar voru vegna stuðnings við fyrstu kaup á fasteign segir Katrín að þær séu í takt við það sem þegar hefur verið gert varðandi nýtingu séreignasparnaðar inn á húsnæðislán eða til fasteignakaupa.

Úr kynningarefni frá fundinum í dag.Vísir
„Eins og þetta er kynnt virðist það vera þannig að fólk með háar tekjur fái mestan skattaafslátt,“ segir Katrín en í kynningunni á frumvarpinu voru tekin dæmi um hjón með samanlagðar tekjur upp á átta hundruð þúsund krónur á mánuði og einstakling með tekjur upp á fimm hundruð þúsund krónur á mánuði.

Kallar Katrín eftir nánari greiningu á frumvarpinu og segir hún að þingflokkur VG muni leggja áherslu á það að kalla eftir slíkum upplýsingum á þingi sem kemur aftur saman í dag.

„Ég myndi segja að þarna hafi vantað alla greiningu, bæði hvað varðar áhrifin á ólíka tekjuhópa og og hvað varða greiningu á áhrifum á lífeyriskerfið,“ segir Katrín. „Við munum kalla eftir þessum upplýsingum en það hefur komið á daginn með fyrri Hörpu-kynningar að það hefur reynst mjög erfitt að fá slík gögn,“ segir Katrín að lokum og vísar þar til skýrslu um það hvernig Leiðréttingin dreifðist á ólíka tekjuhópa sem hún kallaði eftir í nóvember á síðasta ári en hefur enn ekki komið út.

Umrædd frumvörp verða lögð fyrir þingið í vikunni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×