Gulir og glaðir Grindvíkingar færast nær Pepsi-deildinni með sigri á Selfossi í kvöld Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. ágúst 2016 16:00 Grindvíkingar hafa fagnað 44 mörkum í sumar, langflestum allra liða í Inkasso-deildinni. vísir/hanna
Átjánda umferð Inkasso-deildarinnar hefst í kvöld með þremur leikjum. Topplið Grindavíkur sækir Selfoss heim í leik sem verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 HD. Grindvíkingar eru sjóðheitir og hafa unnið fjóra leiki í röð með markatölunni 12-1. Með sigri á Selfossi í kvöld eru þeir gulu komnir með annan fótinn upp í Pepsi-deildina þar sem þeir hafa ekki leikið frá árinu 2012. Grindavík er með 37 stig, einu stigi meira en KA sem er í 2. sætinu og 11 stigum á undan grönnunum í Keflavík sem sitja í 3. sæti. Keflvíkingar fá Hauka í heimsókn í kvöld. Lærisveinar Þorvaldar Örlygssonar hafa farið illa að ráði sínu að undanförnu og aðeins fengið eitt stig út úr síðustu þremur leikjum sínum. Haukar hafa aftur á móti unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum og með sigri í kvöld jafna þeir Keflavík að stigum. Hitt liðið sem féll úr Pepsi-deildinni í fyrra, Leiknir R., tekur á móti Fram. Leiknismenn hafa stimplað sig út úr toppbaráttunni með fjórum töpum í síðustu fimm leikjum og eru komnir niður í 5. sæti deildarinnar. Frammarar sigla lygnan sjó með 22 stig í 8. sæti en með sigri í kvöld fara þeir upp fyrir Leikni.Leikir kvöldsins (hefjast allir klukkan 18:00): Selfoss - Grindavík Stöð 2 Sport 2 HD Keflavík - Haukar Leiknir R. - Fram
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira