Óttar Magnús heimsækir Ole Gunnar hjá Molde Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. október 2016 14:36 Óttar Magnússon Karlsson er eftirsóttur í Noregi. vísir/tom
Óttar Magnús Karlsson, framherji Víkings og U21 árs landsliðs Íslands, fer til Molde í Noregi í næstu viku og kíkir á aðstæður hjá norska úrvalsdeildarliðinu, samkvæmt heimildum Vísis. Ole Gunnar Solskjær, þjálfari Molde, heillaðist mikið af þessum 19 ára gamla framherja þegar hann kom hingað til lands í sumar og er búinn að bjóða honum út á leik Molde og Sogndal 16. október. Óttar er búinn að samþykkja heimboðið en hann mun skoða aðstæður hjá Ole Gunnari og lærisveinum hans og horfa á leik liðsins gegn Sogndal í norsku úrvalsdeildinni. Molde er í fjórða sæti deildarinnar en Brann í Bergen, sem er í öðru sæti, hefur einnig áhuga á Óttari og er búið að bjóða honum að koma að kíkja á aðstæður, samkvæmt heimildum Vísis. Forráðamenn Brann voru á Þróttarvellinum þar sem Víkingur lagði Þrótt, 2-1, í lokaumferð Pepsi-deildarinnar og ræddu við framherjann að leik loknum. Óttar Magnús spilaði sinn fyrsta leik í Pepsi-deildinni árið 2013 aðeins 16 ára gamall áður en hann hélt utan til Ajax í Hollandi. Hann kom heim fyrir tímabilið og skoraði sjö mörk í 20 leikjum. Hann á að baki 26 leiki fyrir öll yngri landslið Íslands en hann var valinn í fyrsta sinn í U21 árs landsliðið á þessu tímabili fyrir frammistöðuna í Pepsi-deildinni. Óttar Magnús var kosinn efnilegasti leikmaður Pepsi-deildarinnar af leikmönnum deildarinnar.
Fótbolti á Norðurlöndum Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira