Ein besta skytta sögunnar lætur staðar numið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. nóvember 2016 23:00
Ray Allen tilkynnti í dag að hann hefði lagt körfuboltaskóna á hilluna eftir langan og farsælan feril. Allen, sem er 41 árs, hefur raunar ekki spilað neitt síðustu tvö tímabil en útilokaði þó aldrei endurkomu á völlinn. Nú er ljóst að hann hefur leikið sinn síðasta leik. Allen er ein besta skytta allra tíma en enginn leikmaður í sögu NBA-deildarinnar hefur skorað fleiri þriggja stiga körfur en hann (2973). Allen lék með fjórum liðum á 18 ára ferli í NBA. Fyrstu sjö árin í deildinni lék hann með Milwaukee Bucks en árið 2003 var honum skipt til Seattle SuperSonics. Allen lék í fjögur ár með Seattle. Hann fór svo til Boston Celtics 2007 og hjálpaði liðinu að vinna meistaratitil á sínu fyrsta tímabili hjá því. Árið 2010 fór Boston aftur í lokaúrslit en tapaði fyrir Los Angeles Lakers í oddaleik. Allen lék með Boston til 2012 þegar hann gekk í raðir Miami Heat. Allen varð meistari með Miami 2013 en hann skoraði fræga þriggja stiga körfu í sjötta leik lokaúrslitanna gegn San Antonio Spurs. Allen jafnaði þá metin og tryggði Miami framlengingu þar sem liðið knúði fram sigur og oddaleik í einvíginu.Þriggja stiga körfuna frægu má sjá hér að ofan. Allen skoraði 18,9 stig, tók 4,1 frákast og gaf 3,4 stoðsendingar að meðaltali í leik á ferlinum.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira