Maðurinn með "ís í æðunum“ | Sjáið hann græða ellefu milljónir með einu skoti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2017 21:00 Það getur gefið vel að hitta úr skoti frá miðju. Þessi mynd tengist þó fréttinni ekki. Vísir/Getty
Hann talaði sjálfur um að hann væri með „ís í æðunum“ og það er vel hægt að færa rök fyrir því eftir að hann smellti niður skoti frá miðju eins og ekkert væri sjálfsagðra. Jerald Acoba fór skælbrosandi og talsvert ríkari heim af NBA-leik Los Angeles Lakers og Memphis Grizzlies í nótt. Jerald Acoba er þrítugur og hann stóðst pressuna þegar hann mætti milli þriðja og fjórða leikhluta og hitti úr skoti frá miðju fyrir framan nítján þúsund áhorfendur í Staples Center. Verðlaunin voru 95 þúsund dollarar eða rétt tæpar ellefu milljónir íslenskra króna. Eftir að Jerald Acoba hitti úr skotinu benti hann á handlegginn sinn og öskraði að hann væri með „ís í æðunum“ en ein stærsta stjarna Lakers-liðsins, D'Angelo Russell, fagnar á svipaðan hátt þegar hann setur niður þristana sína. Acoba er annar áhorfandinn sem nær að setja niður skot frá miðju en sá fyrri fékk þó „bara“ 35 þúsund dollara þegar hann setti niður skot frá miðju í nóvember. Ástæðan er að upphæðin hækkar þegar einhverjum tekst ekki að hitta frá miðju. Acoba græddi því vel á því að svo margir voru búnir að klikka í röð en um leið var pressan meira á honum að missa ekki af öllum milljónum. Það er hægt að sjá milljónaskotið hans hér fyrir neðan.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira