Bæði liðin hafa unnið hvort annað sjö sinnum síðan að Teitur yfirgaf Garðabæinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. janúar 2017 17:45 Frá leikjum Stjörnunnar og Njarðvíkur. Vísir/Samsett/Ernir
Stjarnan tekur á móti Njarðvík í kvöld í fjórtándu umferð Domino´s deildar karla í körfubolta og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport. Útsendingin hefst klukkan 19.05 og leikurinn klukkan 19.15. Þessi lið hafa hildina háð undanfarin tvö tímabil en í bæði skiptin hefur einvígi liðanna í úrslitakeppninni farið alla leið í oddaleik. Njarðvíkingar hafa haft betur í bæði skiptin, fyrst með sigri á heimavelli í oddaleik 2015 og svo með sigri í Ásgarði í oddaleik 2016. Einvígi liðanna í úrslitakeppninni í fyrra, sem eru einmitt fimm síðustu leikir liðanna, var sérstakt því allir fimm leikirnir unnust á útivelli. Njarðvíkingar hafa því unnið þrjá síðustu leiki sína í Garðabænum. Njarðvíkurliðið hefur unnið 6 af 10 leikjum liðanna í úrslitakeppninni en Stjörnumenn hafa verið betri í deildarleikjum liðanna undanfarin tvö tímabil. Stjarnan vann báða deildarleiki liðanna á síðasta tímabili og heimaleikinn sinn á móti Njarðvík tímabilið á undan. Þetta þýðir að liðin hafa unnið sjö leiki hvort gegn hvoru öðru í Domino´s deildinni undanfarin tvö tímabil. Teitur Örlygsson þjálfaði Stjörnuna frá 2008 til 2014 en var síðan aðstoðarþjálfari Friðriks Inga Rúnarssonar hjá Njarðvík undanfarin tvö tímabil. Það er því óhætt að segja að hann hafi séð mikið af sínum gömlu lærisveinum síðan að hann hætti að þjálfa Stjörnuliðið. Fjórtán leikir á tveimur tímabilum er þokkalegur fjöldi af leikjum á ekki lengri tíma.Fjórtán leikir Stjörnunnar og Njarðvíkur á Íslandsmótinu frá 2014 til 2016:2015-16 - Úrslitakeppni - 31-03-2016 Stjarnan 75:79 Njarðvík 29-03-2016 Njarðvík 68:83 Stjarnan 24-03-2016 Stjarnan 68:73 Njarðvík 21-03-2016 Njarðvík 70:82 Stjarnan 18-03-2016 Stjarnan 62:65 Njarðvík- Deild - 25-02-2016 Njarðvík 71:73 Stjarnan 26-11-2015 Stjarnan 80:70 Njarðvík2014-15 - Úrslitakeppni - 02-04-2015 Njarðvík 92:73 Stjarnan 29-03-2015 Stjarnan 96:94 Njarðvík 26-03-2015 Njarðvík 92:86 Stjarnan 22-03-2015 Stjarnan 89:86 Njarðvík 19-03-2015 Njarðvík 88:82 Stjarnan - Deild - 09-03-2015 Njarðvík 101:88 Stjarnan 15-12-2014 Stjarnan 87:80 Njarðvík
Dominos-deild karla Mest lesið Laugavegshlaupið í beinni útsendingu á Vísi Sport Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Íslenski boltinn Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? Fótbolti Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Handbolti „Hrædd um að við séum að dragast aftur úr“ Fótbolti „Nýtti reynsluna úr vindinum heima til að halda þolinmæði“ Golf Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Körfubolti „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Fótbolti Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Körfubolti Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Fleiri fréttir Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Sjá meira