Ellefu þristar hjá Curry í fjórða sigurleik Warriors í röð | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. febrúar 2017 07:30
Steph Curry, leikmaður Golden State Warriors, fór hamförum í 126-111 sigurleik liðsins gegn Charlotte Hornets í nótt sem var fjórði sigur Warriors í röð í NBA-deildinni í körfubolta. Curry, sem var hvíldur í síðasta leik, skoraði hvorki fleiri né færri en ellefu þriggja stiga körfur úr fimmtán skotum. Í heildina skoraði Curry 39 stig auk þess sem hann tók fimm fráköst og gaf átta stoðsendingar. Dell Curry, pabbi Steph, var mættur til að horfa á soninn og hann fékk heldur betur sýningu en Klay Thompson skoraði sex þrista. Saman skoruðu þeir 17 þriggja stiga körfur sem er met í einum leik hjá bakvarðatvíeyki í deildinni. Golden State er sem fyrr í efsta sæti vesturdeildarinnar með 42 sigra og aðeins sjö tapleiki en liðið er búið að vinna níu af síðustu tíu leikjum sínum. Eftir skelfilegan janúar þar sem liðið tapaði fleiri leikjum en það vann byrjar febrúar betur hjá LeBron James og félögum í Cleveland Cavaliers. Liðið vann Minnesota Timberwolves í nótt, 125-97. LeBron skoraði 27 stig og var stigahæstur hjá Cleveland eins og svo oft áður en auk þess tók hann átta fráköst og gaf tólf stoðsendingar. Kyrie Irving bætti við fjórtán stigum og fjórtán stoðsendignum fyrir meistarana sem eru með tveggja sigra forskot á toppi austurdeildarinnar.Úrslit næturinnar: Orlando Magic - Indiana Pacers 88-98 Cleveland Cavaliers - Minnesota Timberwolves 125-97 Boston Celtics 109-104 Brooklyn Nets - New York Knicks 90-95 Miami Heat - Atlanta Hawks 116-93 Detroit Pistons - New Orleans Pelicans 118-98 Dallas Mavericks - Philadelphia 76ers 113-95 Denver Nuggets - Memphis Grizzliez 99-119 Utah Jazz - Milwaukee Bucks 104-88 Phoenix Suns - LA Clippers 114-124 OKC Thunder - Chicago Bulls 100-128 Golden State Warriors - Charlotte Hornets 126-111
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira