Curry hitti ekki skoti fyrir utan en það kom ekki að sök | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. febrúar 2017 07:30
Golden State Warriors vann fjórða leikinn í röð í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið lagði Philadelphia 76ers, 119-108, á útivelli. Golden State er búið að vinna átta af síðustu tíu leikjum sínum og er með fimm sigra forskot á toppi vesturdeildarinnar. Saga leiksins var skelfileg nýting Steph Curry, bestu skyttu í sögu NBA-deildarinnar, fyrir utan þriggja stiga línuna. Hann hitti ekki úr einu af ellefu skotum sínum fyrir utan teiginn og bætti eigið met frá því fjórða nóvember í fyrra þegar hann klikkaði á öllum tíu skotum sínum fyrir utan. Hann skoraði samt sem áður 19 stig þar sem hann hitti úr sjö af þrettán skotum sínum úr teignum og setti niður öll fimm vítaskotin. Kevin Durant átti góðan leik og skoraði 27 stig auk þess sem hann tók átta fráköst og gaf fjórar stoðsendingar en Klay Thompson skoraði 21 stig og hitti úr þremur af níu þriggja stiga skotum sínum. Þrátt fyrir að vera með særindi í hálsi skoraði LeBron James 24 stig, tók tíu fráköst og gaf sex stosðendingar í 102-95 sigri meistara Cleveland Cavaliers á heimavelli gegn Milwaukee Bucks í nótt. Kyrie Irving var stigahæstur Cavaliers með 25 stig auk þess sem hann gaf níu stoðsendingar og tók fjögur fráköst en Derrick Williams átti fína innkomu af bekknum og skoraði fjórtán stig. Cleveland er sem fyrr á toppnum í austrinu með 41 sigurleik og 17 tapleiki en Boston kemur þar næst með 38 sigra.Úrslit næturinnar: NY Knicks - Toronto Raptors 91-92 Golden State Warriors - Philadelphia 76ers 108-119 Cleveland Cavaliers - Milwaukee Bucks 102-95 Boston Celtics - Atlanta Hawks 98-114 Dallas Mavericks 96-89 Houston Rockets - Indiana Pacers 108-117 Sacramento Kings - Minnesota Timberwolves 88-102
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira