Þrenna númer 42 hjá Russell Westbrook og Oscar á ekki lengur metið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. apríl 2017 07:15 Russell Westbrook fagnar sigurkörfu sinni og metinu í nótt. Vísir/AP
Russell Westbrook skrifaði NBA-söguna í nótt þegar hann náði sinni 42. þrennu á tímabilinu. Með því sló hann 55 ára met Oscar Robertson. Sögulegt tímabil varð því enn sögulegra hjá Westbrook. Russell Westbrook gerði gott betur því hann skoraði flautukörfu sem tryggði Oklahoma City Thunder 106-105 sigur og þriggja stiga karfan sá til þess að hann skorað 50 stig í leiknum. Russell Westbrook hafði gulltryggt það í leiknum á undan að vera með þrennu að meðaltali á tímabilinu en því hafði aðeins einn maður náð í sögu NBA - Oscar Robertson tímabilið 1961-62. Westbrook bætti met Oscar Robertson frá sama tímabili sem náði þá 41 þrennu. Westbrook var með 50 stig, 16 fráköst og 10 stoðsendingar á móti Denver Nuggets en þetta er í þriðja sinn sem hann nær að skora 50 stig ofan á þrennu. Metið féll þegar gaf sína tíundu stoðsendingu á Semaj Christon sem setti niður þriggja stiga skot í fjórða leikhluta. Allir áhorfendur voru með á nótunum og voru að bíða eftir stoðsendingu númer tíu. Domantas Sabonis hafði klikkað á tveimur skotum eftir sendingar frá Westbrook en Christon varð á engin mistök og setti skotið niður sem færði Russell metið. Oklahoma City Thunder var þá tíu stigum undir, 91-101, en um leið og tíunda stoðsendingar var í höfn þá snéri Russell Westbrook sér þá að því að skora. Westbrook skoraði fimmtán stig á síðustu fjórum mínútunum og tryggði sínu liði sigurinn. Síðustu 2:30 í leiknum skoraði Russell 13 stig en allt Denver Nuggets liðið aðeins 2 stig. 42. þrenna Russell Westbrook á tímabilinu var líka hans 79. þrenna á ferlinum og komst hann þar með upp fyrir Wilt Chamberlain (78 þrennur) og í fjórða sætið. Aðeins Oscar Robertson (181), Magic Johnson (138) og Jason Kidd (107) hafa nú náð fleiri þrennum í NBA-deildinni.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira