Um fimmtíu ræningjar komust yfir marga milljarða í Paragvæ Atli Ísleifsson skrifar 25. apríl 2017 10:01 Ránið stóð í um tvær klukkustundir. Vísir/AFP
Hópur um fimmtíu vopnaðra manna komust yfir jafnvirði mörg hundruð milljóna króna, mögulega nokkurra milljarða, í ofbeldisfullu ráni í suðausturhluta Paragvæ í gær. Hluti bæjarins Ciudad del Este er rústir einar eftir ránið. Ræningjarnir réðust gegn lögreglustöð bæjarins og skrifstofum peningaflutningafyrirtækins Prosegur. Einn lögreglumaður lét lífið í ráninu sem stóð í rúma tvo tíma. Í frétt Aftonbladet segir að fréttir bárust um fjölda sprenginga á meðan á ráninu stóð. „Sprengingarnar bergmáluðu í bænum eins og sprengjur í stríði,“ segir einn sjónarvotta. Ræningjarnir flúðu frá bænum og er þeirra nú leitað af lögreglu bæði í Paragvæ og Brasilíu. Að sögn fjölmiðla féllu þrír þeirra í skotbardaga þeirra við lögreglu á landamærum Paragvæ og Brasilíu. Fjórir hafa verið handteknir. Ciudad del Este er að finna nálægt Iguaçu-fossunum, einn af vinsælustu ferðamannastöðum Suður-Ameríku, þar sem landamæri Argentínu, Paragvæ og Brasilíu mætast. Talið er að jafnvirði um 4,3 milljarða króna hafi verið í öryggishólfum Prosegur þegar ræningjarnir létu til skarar skríða.
Paragvæ Suður-Ameríka Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Sjá meira