Meintir ISIS-liðar handteknir á Spáni, Bretlandi og Þýskalandi Samúel Karl Ólason skrifar 28. júní 2017 08:22 Handtökunum var stýrt af spænsku lögreglunni, en fjórir voru handteknir í Palme de Mallorca, einn var handtekinn í Bretlandi og einn í Þýskalandi. Vísir/AFP
Sex meintir meðlimir Íslamska ríkisins hafa verið handteknir á Spáni, í Bretlandi og í Þýskalandi. Þeir eru sakaðir um að dreifa áróðri og hafa reynt að útvega hryðjuverkasamtökunum nýja meðlimi. Handtökunum var stýrt af spænsku lögreglunni, en fjórir voru handteknir í Palme de Mallorca, einn var handtekinn í Bretlandi og einn í Þýskalandi. Samkvæmt tilkynningu frá Innanríkisráðuneyti Spánar eru mennirnir grunaðir um að hafa búið til ofbeldisfull áróðursmyndbönd og dreift þeim. Þar að auki skipulögðu þeir leynilega fundi þar sem þeir reyndu að fá ungt fólk til þess að ganga til liðs við ISIS og fara til Sýrlands og Írak og berjast fyrir samtökin.Reuters fréttaveitan segir rannsókn lögreglu hafa hafist árið 2015 eftir að heimasíða með áðurnefndum myndböndum fannst. Framleiðandi myndbandanna er klerkur sem handtekinn var í Bretlandi, en hann var þegar undir eftirliti nokkurra þjóða. Hann hafði nýverið ferðast til Mallorca og hitt þá fjóra menn sem voru handteknir þar. Sá sem handtekinn var í Þýskalandi hafði einnig átt í samskiptum við mennina fjóra og hafði tekið þátt í framleiðslu áróðursmyndbandanna.
Hryðjuverk í Evrópu Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Færir Selenskí eldflaugateikningar Erlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Erlent Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Innlent Fleiri fréttir Hollendingar ætla ekki að taka þátt í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Sjá meira