Færri leikhlé í NBA-deildinni á næstu leiktíð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júlí 2017 20:30 Steve Kerr, þjálfari NBA-meistara Golden State Warriors, ræðir við sína menn í leikhlé. Vísir/Getty
Hvaða körfuboltaáhugamaður hefur ekki kvartað yfir miklum fjölda leikhléa í NBA-deildinni í körfubolta? Sumir leikir ná engu flugi þegar þjálfarnir taka hvert leikhléið á fætur öðru. Loksins segja sumir en næsta tímabil boðar smá breytingu á þessum ósið að vera alltaf að stoppa leikinn í tíma og ótíma til að koma að auglýsingum. ESPN segir frá. Þjálfarar NBA-deildarinnar geta nú ekki lengur tekið tuttugu sekúndna leikhlé hvað það níu leikhlé í leik. Stjórn NBA-deildarinnar hefur sett nýjar reglur varðandi leikhléin í deildinni. Ákveðið var að fækka leikhléum um fjögur, úr átján í fjórtán. Hvort lið getur nú „bara“ tekið sjö leikhlé í einum leik og tvö leikhlé í hverri framlengingu. Liðin geta líka aðeins tekið tvö leikhlé síðustu tvær mínúturnar í leikjum. Þá geta þjálfara hvorki tekið 20 sekúndna leikhlé eða 90 sekúndna leikhlé. Öll leikhléin verða núna 75 sekúndur og það má taka þessi sjö leikhlé hvenær sem er í leiknum. Þjálfari gæti þannig klárað sjö leikhlé fyrir hálfleik eða sparað öll sjö leikhléin sín þar til í seinni hálfleik. NBA vill auka skemmtanagildi leikjanna og ánægju áhorfenda með því að hraða leiknum og taldi réttu leiðina vera að fækka leikhléum.
NBA Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Sjá meira