Dwyane Wade verður liðsfélagi LeBron James á ný Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. september 2017 08:00 Dwyane Wade og LeBron James. Vísir/Getty
Dwyane Wade hefur tekið ákvörðun um að ganga til liðs við Cleveland Cavaliers og spila með liðinu í NBA-deildinni á komandi tímabili samkvæmt heimildum bandarískra fjölmiðla. Chicago Bulls keypti upp samninginn við Dwyane Wade á sunnudaginn og verður hann laus allra mála í dag. Wade mun skrifa undir eins árs samning við Cleveland og verður þar á lágmarkslaunum eða „aðeins“ 2,3 milljónum dollara fyrir tímabilið. Wade þarf svo sem ekki að kvarta. Hann gaf eftir átta milljónir dollara þegar Chicago Bulls keypti hann út samningnum. Wade átti að fá 23,8 milljónir dollara fyrir allt 2017-18 tímabilið en fær 15,8 milljónir dollara eða 1,7 milljarða í íslenskum krónum. Bulls er því í raun að borga launin hans hjá Cleveland í vetur. Cleveland Cavaliers hafði betur í kapphlaupinu við Oklahoma City Thunder, San Antonio Spurs og Miami Heat sem komu öll líka til greina.No player has spent more time on the floor as LeBron James' teammate in the playoffs than Dwyane Wade (shared the court for 2,754 minutes). pic.twitter.com/kt6NTDlpZ6 — ESPN Stats & Info (@ESPNStatsInfo) September 27, 2017 Vinirnir Dwyane Wade og LeBron James verða því liðsfélagar á ný en þeir spiluðu saman í fjögur tímabil með Miami Heat. Þá kom Lebron til Wade í Miami en núna endurgeldur Dwyane Wade honum greiðann og kemur til James í Cleveland. Cleveland Cavaliers liðið hefur komist í lokaúrslitin þrjú tímabil í röð og vann NBA-titilinn 2016. James og Wade hafa báðir orðið þrisvar sinnum meistarar, tvisvar sinnum saman og einu sinni sér. Wade er 35 ára gamall en var með 18 stig að meðaltali með Chicago Bulls á síðasta tímabili. Á fjórtán tímabilum í NBA-deildinni er hann með 23,3 stig, 5,7 stoðsendingar og 4,8 fráköst að meðaltali í leik.
NBA Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Fleiri fréttir Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Sjá meira