„Mick, ég skulda þér bjór“ Stefán Ó. Jónsson skrifar 14. nóvember 2017 07:37 Charlie Fry hlaut nokkrar skrámur eftir samskipti sín við hákarlinn. Sky News
Breskur læknir slapp frá hákarli undan ströndum Ástralíu í gær með því að kýla hann í trjónuna. Læknirinn, Charlie Fry, hafði verið renna sér á brimbretti um 40 metra frá landi þegar hákarlinn, sem var um tveir metrar að lengd, stökk upp úr sjónum og hafnaði á öxl mannsins. Hann segir að hákarlinn hafi komið að blindu hliðinni og að um mikið högg hafi verið að ræða. Fry segist þá hafa slegið hákarlinn í trjónuna, eða efri skoltinn. Var það nóg til þess að hákarlinn missti áhugann og synti í burtu. Hann hafi sjálfur hoppað upp á brimbrettið sitt, náð öldu og siglt að landi. „Ég sá hákarlinn koma upp úr sjónum og snúa hausnum að mér þannig að ég sló hann með vinstri hendi,“ segir Fry í samtali við fjölmiðla ytra. Hann segist hafa fengið innblástur frá brimbrettakappanum Mike Fanning sem varðist hákarlaárás í beinni sjónvarpsútsendingu árið 2015. Átök Fanning, sem hafði verið að keppa á brimbrettamóti, má sjá hér að neðan. „Ég hugsaði: „Gerðu bara það sem Mick gerði, sláðu hann í trjónuna.“ Ef þú ert að horfa eða hlusta, Mick, ég skulda þér bjór.“
Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira