Erlent

Mið­flokkurinn fær um­boðið

Kjartan Kjartansson skrifar
Elisabeth Thand Ringqvist, leiðtogi Miðflokksins, segist ekki endilega hafa metnað til að verða forsætisráðherra sjálf, heldur liðka til fyrir ríkisstjórnarmyndun.
Elisabeth Thand Ringqvist, leiðtogi Miðflokksins, segist ekki endilega hafa metnað til að verða forsætisráðherra sjálf, heldur liðka til fyrir ríkisstjórnarmyndun. Vísir/EPA

Leiðtogi Miðflokksins fékk umboð til stjórnarmyndunar í Svíþjóð í dag. Jafnaðarmönnum hafði ekki tekist að klambra saman ríkisstjórn á þeim rúma mánuði sem er liðinn frá kosningum.

Andreas Norlén, forseti sænska þingsins, tilkynnti í hádeginu að Elisabeth Thand Ringqvist, leiðtogi Miðflokksins, tæki við keflinu eftir að þingið hafnaði ríkisstjórn undir forsæti Magdalenu Andersson og jafnaðarmanna á fimmtudag.

Thand Ringqvist hefur nú viku áður hún þarf að gefa Norlén skýrslu um stöðuna. Hún segist ætla að bjóða fulltrúa allra flokka til fundar. Metnaður hennar sé að liðka til fyrir stjórnarmyndun frekar en að verða endilega sjálf forsætisráðherra.

Amanda Lind

Talsmaður Græningja.


Daniel Helldén

Talsmaður Græningja.


Ebba Busch

Formaður Kristilegra demókrata og orku- og iðnaðarráðherra.


Elisabeth Thand Ringqvist

Formaður Miðflokksins.


Jimmie Åkesson

Formaður Svíþjóðardemókrata.


Magdalena Andersson

Formaður Sósíaldemókrata.


Nooshi Dadgostar

Formaður Vinstriflokksins.


Simona Mohamsson

Formaður Frjálslynda flokksins og menntamálaráðherra.


Ulf Kristersson

Formaður Moderaterna og forsætisráðherra.

„Miðflokkurinn vill skilvirka ríkisstjórn sem skapar fleiri störf, dregur úr losun og eflir heilbrigðiskerfið,“ sagði hún.

Norlén sagði að enginn skýr kostur hefði verið í stöðunni og að ekki væri eining á milli flokkanna um hvernig standa ætti að stjórnarmyndun.

Á meðal helstu ásteytingarsteina í tilraunum Andersson til þess að mynda vinstristjórn var að Miðflokkurinn vildi ekki vinna með Vinstriflokknum í ríkisstjórn. Vinstriflokkurinn setti það aftur sem skilyrði fyrir að hann styddi stjórn Andersson að hann fengi sæti við borðið.

Niðurstöður þingkosninga
þegar 100% atkvæða hafa verið talin




Fleiri fréttir

Sjá meira


×