Tuttugu ár frá mögnuðu afreki Íslendings sem fréttamenn töldu vera frá Ísrael Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. nóvember 2017 20:45 Umfjöllun í DV þann 24. nóvember 1997. Fréttamenn töldu í fyrstu að hinn óþekkti Íslendingur væri í raun Ísraelsmaður.
Tuttugu ár eru í dag liðin frá einu magnaðasta afreki Íslendings íþróttum, þegar 26 ára gamall Ólafsfirðingur að nafni Kristinn Björnsson komst fyrstur íslenskra skíðamanna á verðlaunapall í svigkeppni heimsbikarmóts. Afrekið vann Kristinn í Park City í Bandaríkjunum. Kristinn var í 17.-18. sæti eftir fyrri ferð sína en seinni ferðin varð söguleg. Ólafsfirðingurinn lét vaða og allt gekk upp. Hann var kominn í efsta sætið en enn áttu fjölmargir eftir að skíða niður. Margverðlaunaðir skíðakappar. Svo fór að aðeins Austurríkismaðurinn Thomas Stangassinger náði samanlagt að skjótast fram úr Kristni og munaði tíu hundruðustu úr sekúndu. Í þriðja sæti hafnaði Christian Jagge frá Noregi á þremur hundruðustu á eftir Kristini. Tími Kristins var besti tími dagsins og uppskar hann því silfurverðlaun. Upptöku frá keppninni má sjá hér að neðan. Eðlilega fylltust Íslendingar stolti yfir árangri Kristins. Keppnin var sýnd í beinni útsendingu á íþróttastöðinni Sýn og var um spennuþrungna keppni að ræða. Kristinn var reyndur skíðamaður, hafði keppt á tvennum vetrarólympíuleikum en þarna skein stjarna hans loks svo skært að eftir var tekið, hérlendis sem erlendis. Árangurinn dugði þó ekki til þess að Kristinn yrði kjörinn íþróttamaður ársins. Hann hafnaði í þriðja sæti á eftir Geir Sveinssyni handboltamanni og tugþrautarkappanum Jóni Arnari Magnússyni.Kristinn brosti út að eyrum eftir að annað sætið var í höfn.„Það er varla að maður trúi þessu enn. Þetta er mesta upplifun í mínu lífi. Ég hafði aldrei gert mér í hugarlund hvað svona árangur hefði í för með sér. Ég var umsetinn fréttamönnum eftir að úrslit lágu fyrir. Þetta er ógleymanleg lífreynsla. Mér gekk ágætlega í fyrri umferðinni en í þeirri síðari hafði ég mikið sjálfstraust sem hjálpaði mér mikið. Það verður örugglega erfitt að fylgja þessum árangri eftir. Ég er samt ákveðinn í að halda áfram á sömu braut. Nú veit ég að þetta er hægt og það skiptir öllu máli. Ég hef lengi stefnt að þessu en ég átti ekki von á því að það gerðist svona hratt. Þrotlausar æfingar eru farnar að skila árangri,“ sagði Kristinn í samtali við DV, skömmu eftir keppnina í Park City. Kristinn sagðist hafa notið stundarinnar og verið spurður margra spurninga innan um stórstjörnurnar á blaðamannafundi að keppni lokinni.„Það kom flatt upp á alla að Íslendingur hreppti annað sætið. Það þekkti mig enginn og Stangassinger, sem vann gullið, þekkti mig ekkert og hafði aldrei séð mig áður. Fréttamenn héldu í fyrstu að ég væri frá Ísrael en ég var fljótur að leiðrétta þá. Þessi árangur minn gefur mér betra rásnúmer fyrir næstu keppni sem haldin verður á ítalíu um miðjan næsta mánuð,” sagði Kristinn.Að neðan má sjá tilþrif Kristins af Facebook-síðu RÚV. Rætt er við Kristinn í seinni hlutanum þar sem hann svarar spurningum fréttamanns á norsku. Löngum hefur verið gert grín að því að Kristinn hafi verið skíðakappinn sídettandi. Sjálfur hefur hinn hægláti og hógværi Ólafsfirðingur bent á það að hann hefði engu að tapa. Hann gæfi allt í þetta. Skapti Hallgrímsson, íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu, skrifaði um þjóðareignina Kristinn í desember 1997, nokkrum vikum eftir árangurinn í Park City. Gefum Skapta orðið. „Í of langan tíma hafa of margir landsmenn talað um íslenska skíðamenn í hálfkæringi. Rifjað er upp þegar þeir gleymdu skíðunum sem þó gleymdust alls ekki, vel að merkja, á leiðinni á Ólympíuleikana í Calgary 1988. Eða þegar íslenski skíðamaðurinn á Ólympíuleikunum í Albertville 1992 renndi sér út úr brautinni, lenti á starfsmanni og saman runnu þeir langan veg niður brekkuna, utan brautar. Þá hlógu margir hér á Fróni. En skyldu menn munu hver þessi íslenski skíðamaður var? Já, já, það var enginn annar en Kristinn Björnsson. En þá var hann ekki þjóðareign. Hafði ekki náð þeirri frægð og þeim frama sem nú er,“ skrifaði Skapti í Morgunblaðið.Forsíða DV þann 24. nóvember 1997.Minntist Skapti á þá staðreynd að oft væri stutt á milli hláturs og gráturs í íþróttum. Í því samhengi má minnast þess að um tíu ár eru síðan karlalandsliðið í knattspyrnu steinlá 3-0 gegn Liechtenstein í undankeppni EM 2008. Nú eru fótboltastrákarnir okkar á leiðinni á HM í Rússlandi eftir ótrúlega velgengni undanfarin ár. Kristinn tók alltaf áhættu á sínum ferli. Skapti, sem búsettur er norðan heiða, tók viðtal við Kristinn árið 1985, þá keppandi í tólf ára flokki, sem þótti líklegur til sigurs í svigkeppni Andrésar Andar leikanna á Akureyri. „Margir töldu Kristin sigurstranglegastan í sviginu en hann varð fyrir því óhappi að detta í fyrri ferðinni missti við það mikinn tíma og þar með voru sigurmöguleikar hans úr sögunni. Til að sanna ágæti sitt keyrði hann síðan snilldarlega í síðari ferðinni og náði þá bestum brautartíma.“ Kristinn jafnaði svo sinn besta árangur þegar hann náði öðru sæti á heimsbikarmóti í janúar 1998 í Austurríki. Hann keppti á fernum vetrarólympíuleikum fyrir Íslands hönd.
Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Enski boltinn „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Fleiri fréttir Reikna með Kane en vita ekki hvenær Gakpo og Isak missa af stórleiknum Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Viktor Gísli varð fárveikur á HM „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ Mourinho tekur upp hanskann fyrir Mbappe „Ef ég myndi segja allar þá myndi fólk halda að ég væri klikkuð“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Ungu strákarnir okkar slást við Grikki um sæti á EM Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Í tveggja leikja bann fyrir að kippa í hárið Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Hamilton vonast til þess að keppa í Afríku Dagskráin í dag: Grindavík og KR mætast aftur Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Áttum bara erfitt með að stoppa Bandaríkjamanninn“ „Þetta eru alvöru hermenn“ Mótherji Eriku kastaði dós í hana „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Sjá meira