Litlu munar á sjálfstæðis- og sambandssinnum í Katalóníu Kjartan Kjartansson skrifar 19. desember 2017 19:26 Kosningaveggspjald sem lýsir því yfir að Puigdemont sé forseti Katalóna. Vísir/AFP
Skoðanakannanir benda til þess að mjótt verði á mununum á milli stuðningsmanna og andstæðinga sjálfstæðis í héraðskosningum í Katalóníu sem fara fram á fimmtudag. Boðað var til kosninganna eftir að landsstjórnin leysti héraðsstjórnina upp í kjölfar einhliða sjálfstæðisyfirlýsingar hennar. Útlit er fyrir að Lýðveldissinnaði vinstriflokkur Katalóníu hljóti flest atkvæði en flokkurinn styður sjálfstæði héraðsins. Hann fengi hins vegar aðeins einu eða tveimur þingsætum fleiri en Borgararnir, miðhægriflokkur sem vill að Katalónía verði áfram hluti af Spáni. Flokkur Carles Puigdemont, fyrrverandi forseta héraðsstjórnarinnar, yrði þriðji stærsti flokkurinn. Sjálfstæðissinnar hefðu þá ekki meirihluta á katalónska héraðsþinginu. Puigdemont flúði til Belgíu eftir að hann og aðrir ráðherrar í héraðsstjórninni voru ákærðir fyrir uppreisn gegn spænska ríkinu. Hann hefur sagt að spænsk yfirvöld verði að fella ákærurnar niður ef hann og aðrir sjálfstæðissinnar vinna sigur í kosningunum, að því er kemur fram í frétt BBC. Sjálfstæðissinnar á þinginu lýstu yfir sjálfstæði 27. október eftir umdeilda þjóðaratkvæðagreiðslu sem spænsk stjórnvöld reyndu að koma í veg fyrir. Mariano Rajoy, forsætisráðherra, leysti síðar héraðsstjórnina upp og boðaði til kosninga þar 21. desember.
Sjálfstæðisbarátta Katalóníu Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira