Westbrook breyttist í besta frákastara deildarinnar í lokaleikjunum og er sá fyrsti með tvö þrennutímabil Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. apríl 2018 08:30 Russell Westbrook. Vísir/AP
Russell Westbrook tók 20 fráköst í lokaleik Oklahoma City Thunder í nótt og sá með því til þess að hann var með þrennu að meðaltali annað tímabilið í röð. Russell Westbrook skoraði reyndar bara sex stig þegar Oklahoma City Thunder vann Memphis Grizzlies 137-123 í lokaleik deildarkeppninnar og tryggði sér fimmta sætið í Vesturdeildinni en hann var með nýtt persónulegt met í fráköstum og gaf síðan 19 stoðsendingar. Oscar Robertson var í rúma hálfa öld sá eini sem hafði verið með þrennu að meðaltali í leik á NBA-tímabili en nú hefur Russell Westbrook náð því tvö tímabil í röð.Before Wednesday's game, Russell Westbrook needed 16 rebounds to ensure that he would average a triple-double on the season. He grabbed 16 rebounds faster than he ever has in his career, surpassing a mark he set on Monday. pic.twitter.com/fE0c9wr0Kp — ESPN Stats & Info (@ESPNStatsInfo) April 12, 2018 Russell Westbrook þurfti að taka 34 fráköst í síðustu tveimur leikjum sínum til að ná þrennu meðaltalinu og hann náði 38 fráköstum í þessum tveimur leikjum. Það var fagnað gríðarlega í höllinni þegar hann náði frákastinu sem tryggði þrennumeðaltalið. Russell Westbrook endar tímabilið með meðaltöl upp á 25,4 stig, 10,0 fráköst og 10,3 stoðsendngar. Á tímabilinu í fyrra var hann með 31,6 stig, 10,7 fráköst og 10,4 stoðsendingar að meðaltali. Westbrook var „bara“ með 9,4 fráköst að meðaltali í 57 leikjum sínum fyrir úrslitakeppni en hann hækkaði það upp í 11,7 fráköst í leik í síðustu 23 leikjum sínum og náði með því meðaltalinu.Congrats to @russwest44 of the @okcthunder on becoming the first player in @NBAHistory with multiple triple-double seasons!#ThisIsWhyWePlay#ThunderUppic.twitter.com/B3ZaO7hxNd — NBA (@NBA) April 12, 2018
NBA Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Leik lokið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Sjá meira