Þórður segir að ÍA hafi reynt að losa sig við Mark eftir árásina Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 5. maí 2018 15:15 Þórður Þórðarson var þálfari Mark Doninger þegar hann réðst á Guðrúnu Dögg Rúnarsdóttur. Vísir/Valgarður Gíslason „
Auðvitað situr það í manni að þurfa að stíga inn í svona,“ segir Þórður Þórðarson fyrrum þjálfari hjá ÍA í samtali við Vísi. Þórður var þjálfari Mark Doninger á tímabili og stöðvaði síðustu barsmíðar hans á Guðrúnu Dögg Rúnarsdóttur. Í einlægu viðtali í Fréttablaðinu í dag lýsir Guðrún sambandinu við Mark, ofbeldinu sem hún þurfti að þola og nóttinni sem Þórður þjálfari kom henni til bjargar. „Eina skiptið sem ég kom nálægt þessu máli var þegar ég fór þangað í þessu tilviki sem hún vísar í. Ég kem á svæðið og tek þau í sundur. Annars sá framkvæmdastjóri félagsins um öll svona mál og stjórn félagsins.“ Í viðtalinu segir Guðrún að á meðan á málaferlunum vegna ofbeldisins stóð, hafi ÍA staðið við bakið á Mark allan tímann, jafnvel þó að þjálfari liðsins hafi komið að honum að reyna að drepa hana. „Ég kom ekki nálægt þessu nema þessa nótt þegar ég fór heim til þeirra. Rétt eftir miðnætti held ég að það hafi verið, og tók hana með mér og rak hann út úr herberginu. Það eru einu afskipti mín af þessu máli,“ segir Þórður. „Þjálfarar yfir höfuð eru ekkert að skipta sér af leikmönnum utan æfingartíma.“Hélt að hún myndi deyja Hér fyrir neðan má finna lýsingar Guðrúnar Daggar af því þegar Þórður kom að Mark þar sem hann reyndi að kyrkja hana. „Eins og áður segir vorum við hætt saman, en hann hélt áfram að koma fyrir utan heimili mitt og lét mig ekki í friði. Hann sendi mér ítrekað myndir af sér að rispa á sér úlnliðina og sagðist ætla að drepa sig ef ég kæmi ekki og hótaði því líka að setja myndir og myndbönd af mér á netið sem hann hafði tekið í leyfisleysi. Í eitt skiptið var ég verulega hrædd og lét til leiðast. Hann var mjög almennilegur þegar ég kom og við náðum að ræða saman á rólegum nótum. En þegar hann sagðist vilja byrja með mér aftur og ég sagði það ekki inni í myndinni, sturlaðist hann gjörsamlega. Hann bjó með þremur öðrum leikmönnum úr liði ÍA og þegar hann heyrði að þeir væru að koma inn í íbúðina dró hann mig á hárinu inn í herbergið sitt. Ég reyndi að berjast á móti, en hann var einfaldlega sterkari. Hann henti mér upp í rúm og byrjaði að berja mig. Strákarnir heyrðu hrópin í mér, en voru of hræddir til að koma inn. Ég komst að því eftir á að þeir hringdu í þjálfara liðsins frammi á gangi. Á þeim fimm mínútum sem liðu þar til þjálfarinn kom á staðinn náði Mark næstum því að drepa mig. Hann festi hendurnar á mér og var kominn það langt í að kyrkja mig að ég var öll orðin blá í framan og háræðarnar á hálsinum slitnuðu niður að brjóstum. Ég man að það sem ég hugsaði var: ,,Ég trúi ekki að ég sé að fara að deyja á þennan hátt!“ Ég fór að hugsa um foreldra mína og fjölskyldu og hélt bara að ég væri að deyja. Það síðasta sem ég man áður en þjálfarinn kom loks á staðinn var að hann skallaði mig í andlitið, þannig að báðar varir mínar sprungu illa.“ Þórður kom þegar þarna var komið sögu inn í herbergið og náði að koma Guðrúnu Dögg út úr herberginu og koma henni við illan leik heim til sín. Hún hafði þegar í stað samband við lögreglu og kærði í kjölfarið Mark Doninger fyrir tvær alvarlegar líkamsárásir. Hann var dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi. „Ég kærði hann fyrir árásirnar sem höfðu átt sér stað fyrir framan annað fólk, en gat auðvitað ekki kært hann fyrir öll skiptin sem hann réðst á mig þegar við vorum tvö ein, þar sem vitni skorti.“Fréttablaðið/SigtryggurReyndu að losa sig við Mark eftir atvikið ÍA sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem félagið viðurkennir mistök í máli Mark. Þar kom fram að eftir skoðun óháðra aðila hafi breytingar verið gerðar varðandi viðbrögð í svona málum, og að Guðrún Dögg hefði verið beðin afsökunar. „Þetta er mjög leiðinlegt, þetta eru ekki skemmtileg mál að eiga við,“ segir Þórður. Hann segir að það hafi verið erfitt að þjálfa í þessum aðstæðum, vitandi af því sem hafði gerst. „Við tókum á þessu máli innan félagsins strax og þó að það hafi ekki verið gert „en, to, tre,“ þá var unnið í því. Það er ekkert hlaupið að því að henda leikmanni í burtu. Það er náttúrulega enginn sekur uns sekt er sönnuð og á þessum tímapunkti var ekki búið að dæma í þessu máli. Hvað ef við hefðum hent honum í burtu og svo hefði komið í ljós að þetta var lygi. Þá hefðum við verið hengdir af hans hálfu, af hans lögfræðingum. Þetta er ekki alveg svart og hvítt sko. Við tókum á þessu máli á sínum tíma. Ég veit hvernig þetta mál var frá A til Ö og ég veit hvað félagið gerði. Það er ekki satt að félagið hafi ekki gert neitt.“ Þórður bendir á að þegar Mark var dæmdur hafi hann verið farinn frá félaginu. „Við unnum í því að losa okkur við leikmanninn þegar þetta mál kemur upp. Það gerðum við á endanum og seldum hann til Stjörnunnar. Ég efast ekki um það að ef hann hefði verið dæmdur ef hann hefði verið leikmaður hjá okkur að hann hefði verið látinn fara því þá værum við komnir með ástæðu til að reka hann.“ Hikaði ekki áður en hann fór af stað Þórður segir málið hrikalegt og að atvikið þessa nótt sitji enn í sér. „Auðvitað situr það í manni að þurfa að stíga inn í svona. Það er engin spurning.“ Hann segist þó aldrei hafa hikað þegar símtalið kom, hann stökk strax af stað. „Þeir hringja í mig strákarnir og báðu mig að koma. Ég bý hérna 500 metra frá því hvar þetta gerðist. Það var ekkert um annað en að henda sér í föt og bruna yfir.“
Tengdar fréttir Knattspyrnustjórn ÍA harmar mál Guðrúnar Daggar og sendi henni afsökunarbeiðni Guðrún Dögg Rúnarsdóttir sagði frá ofbeldi Mark Doninger í einlægu viðtali í dag. 5. maí 2018 13:25 Þurfti að flýja land eftir lífshættulega árás Eftir ítrekaðar barsmíðar og hótanir sleit Guðrún Dögg Rúnarsdóttir sambandi sínu við fyrrverandi leikmann ÍA, Mark Doninger. 5. maí 2018 07:00 Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Barist á hafi úti Erlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent „Ég sé engin rök fyrir því“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Sjá meira
Knattspyrnustjórn ÍA harmar mál Guðrúnar Daggar og sendi henni afsökunarbeiðni Guðrún Dögg Rúnarsdóttir sagði frá ofbeldi Mark Doninger í einlægu viðtali í dag. 5. maí 2018 13:25
Þurfti að flýja land eftir lífshættulega árás Eftir ítrekaðar barsmíðar og hótanir sleit Guðrún Dögg Rúnarsdóttir sambandi sínu við fyrrverandi leikmann ÍA, Mark Doninger. 5. maí 2018 07:00