Það er best að búa í Mosfellsbæ Bryndís Haraldsdóttir skrifar 23. maí 2018 07:00 Fjölgunin hefur verið mest í Mosfellsbæ af öllum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu, ástæðan er sú að hér er gott að búa. Viðhorfskannanir Gallup hafa sannað það ár eftir ár en hér eru íbúar almennt mjög ánægðir. Nægt framboð hefur verið að lóðum í Mosfellsbæ og tryggt er með skipulagi að byggðin sé blönduð með fjölbýlum og sérbýlum í hæfilegri blöndu. Traust og ábyrg fjárhagsstjórn Mosfellsbær er vel rekið sveitarfélag, þrátt fyrir mikið uppbyggingarskeið þá hefur okkur engu að síður tekist að greiða niður skuldir og hefur skuldahlutfallið farið lækkandi. Þó kennitölur og rekstrarniðurstaða sé oft minnst spennandi umræðuefni fyrir kosningar þá er það engu að síður það sem mestu máli skiptir, enda ljóst að sveitarfélagið hefur meira svigrúm til að bæta þjónustuna og draga úr skattheimtu sé það vel rekið og fjárhagurinn traustur, eins og staðan er hér í Mosfellsbæ.Grænn og fjölskylduvænn bær Mosfellsbær er vel staðsett sveitarfélag innrammað af fallegum fellum ám og Leirvoginum. Tækifæri til útivistar og hreyfingar eru býsna mörg. Það er mikilvægt að við frekari uppbyggingu sé gætt að þessum dýrmætu fjársjóðum sem náttúran er okkur og tryggja að aðgengi íbúa að þeim sé sem best. Aðbúnaður fyrir fjölskyldur er það sem skiptir okkur mestu máli, góðir og öflugir skólar ásamt fjölbreyttu íþrótta- og tómstundastarfi. Skólarnir í Mosfellsbæ eru í fremstu röð, en stöðugt þarf að vera á tánum og tryggja góðan aðbúnað starfsfólks og nemenda. Það að efla lestrarkunnáttu er stöðugt verkefni og tryggja þarf gott aðgengi nemenda og starfsfólk að fullkomnustu tækni hverju sinni.Höfundur er alþingismaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bryndís Haraldsdóttir Kosningar 2018 Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Fjölgunin hefur verið mest í Mosfellsbæ af öllum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu, ástæðan er sú að hér er gott að búa. Viðhorfskannanir Gallup hafa sannað það ár eftir ár en hér eru íbúar almennt mjög ánægðir. Nægt framboð hefur verið að lóðum í Mosfellsbæ og tryggt er með skipulagi að byggðin sé blönduð með fjölbýlum og sérbýlum í hæfilegri blöndu. Traust og ábyrg fjárhagsstjórn Mosfellsbær er vel rekið sveitarfélag, þrátt fyrir mikið uppbyggingarskeið þá hefur okkur engu að síður tekist að greiða niður skuldir og hefur skuldahlutfallið farið lækkandi. Þó kennitölur og rekstrarniðurstaða sé oft minnst spennandi umræðuefni fyrir kosningar þá er það engu að síður það sem mestu máli skiptir, enda ljóst að sveitarfélagið hefur meira svigrúm til að bæta þjónustuna og draga úr skattheimtu sé það vel rekið og fjárhagurinn traustur, eins og staðan er hér í Mosfellsbæ.Grænn og fjölskylduvænn bær Mosfellsbær er vel staðsett sveitarfélag innrammað af fallegum fellum ám og Leirvoginum. Tækifæri til útivistar og hreyfingar eru býsna mörg. Það er mikilvægt að við frekari uppbyggingu sé gætt að þessum dýrmætu fjársjóðum sem náttúran er okkur og tryggja að aðgengi íbúa að þeim sé sem best. Aðbúnaður fyrir fjölskyldur er það sem skiptir okkur mestu máli, góðir og öflugir skólar ásamt fjölbreyttu íþrótta- og tómstundastarfi. Skólarnir í Mosfellsbæ eru í fremstu röð, en stöðugt þarf að vera á tánum og tryggja góðan aðbúnað starfsfólks og nemenda. Það að efla lestrarkunnáttu er stöðugt verkefni og tryggja þarf gott aðgengi nemenda og starfsfólk að fullkomnustu tækni hverju sinni.Höfundur er alþingismaður
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar