Milljónir horft á myndband af lækni gera lítið úr kvíðasjúklingi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 18. júní 2018 14:56 Læknirinn virtist ekki hafa mikla trú á að ástand sjúklingsins væri raunverulegt. Vísir
Læknir á neyðarmóttöku El Camino spítalans í Kaliforníu hefur verið sendur í leyfi eftir að hann gerði lítið úr sjúklingi sem leitaði á spítalann. Faðir sjúklingsins tók orðaskiptin upp á myndband sem hátt í fimm milljónir hafa horft á. Hinn tvítugi Samuel Bardwell leitaði á neyðarmóttökuna eftir að hafa fengið kvíðakast eftir körfuboltaæfingu í síðustu viku. Á myndbandinu má sjá hann liggja í sjúkrarúmi á sjúkrahúsinu með lækninn standandi yfir sér. Krefst læknirinn þess að hann reisi sig við en þegar Bardwell segist ekki geta það virðist læknirinn hafa litla trú á því. „Þú ert minnst veikur allra sem eru hérna,“ segir læknirinn við hann og byrjar að toga hann á fætur. Þegar Bardwell segist eiga erfiðleika með öndun fer læknirinn að hlæja og spyr hann kaldhæðnislega hvort að hann sé þá á lífi. Óskar Bardwell þá eftir kvíða- og verkjalyfjum og spyr læknirinn þá hvort að hann sé á höttunum eftir „eiturlyfjum.“Í samtali við fjölmiðla segir faðir mannsins að sonur hans hafi tekið lyfið Klonopin sem kvíðastillandi lyf þegar á þurfi að halda og miðað við þær upplýsingar sem þau hafi fengið eftir að myndbandið var birt megi rekja ástand hans til fráhvarfa eftir að hafa sleppt því að taka lyfið í nokkra daga. Yfirmaður sjúkrahússins hefur beðið feðgana afsökunar vegna málsins en læknirinn umræddi hefur verið sendur í tímabundið leyfi á meðan málið er rannsakað af hálfu sjúkrahússins.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira