Ljón átu veiðiþjófa í Suður-Afríku Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 5. júlí 2018 18:40 Mennirnir áttu aldrei séns eftir að þeir römbuðu fram á ljónin, að sögn eiganda garðsins. Vísir/Getty
Minnsta kosti tveir menn grunaðir um að hafa verið veiðiþjófar fundust látnir í ljónagreni á verndarsvæði í Suður-Afríku. Talið er að mennirnir hafi verið étnir af ljónunum er þeir laumuðust inn á verndarsvæðið fyrr í vikunni. BBC greinir frá. Landverðir fundu líkamsleifar mannanna tveggja og talið er mögulegt að líkamsleifar þriðja mannsins hafi einnig fundist í ljónagreninu. Talið er að mennirnir hafi rambað á stóran hóp ljóna er þeir laumuðust inn í garðinn aðfaranótt mánudags. „Við erum ekki alveg vissir um hvað þeir voru margir, það er ekki mikið eftir af þeim,“ sagði Nick Fox, eigandi verndarsvæðisins. Í grennd við líkamsleifar mannanna fannst byssa ásamt ýmsum búnaði sem bendir til þess að mennirnir hafi ætlað sér að veiða nashyrninga en níu slík dýr hafa verið drepin af veiðiþjófum á verndarsvæðinu það sem af er ári. Nashyrningarnir eru eftirsóttir þar sem horn þeirra eru talin vera ástarlyf í Asíu og hefur eftirspurn aukist undanfarin ár.
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira