Hefja aftur heræfingar í Suður-Kóreu Samúel Karl Ólason skrifar 28. ágúst 2018 19:00 Jamis Mattis, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Vísir/AP
Yfirvöld Bandaríkjanna hafa ákveðið að hefja heræfingar í Suður-Kóreu að nýju. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ákvað að hætta æfingum með herafla Suður-Kóreu á fundi hans og Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, í Singapúr í júní. James Mattis, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti þetta í dag en hann sagði ekki hvenær æfingarnar munu hefjast að nýju. Það myndi velta á viðræðum Bandaríkjanna og Norður-Kóreu um kjarnorkuvopna- og eldflaugaáætlanir einræðisríkisins. Eftir fund Trump og Kim sagði Trump að sameiginlegar æfingar Bandaríkjanna og Suður-Kóreu væru stríðsleikir og gaf í skyn að Norður-Kóreu stæði ógn af þeim. Mattis vildi ekki tjá sig um þau ummæli og sagði málið í höndum erindreka ríkjanna.Mattis fór einnig yfir það hvernig herafla Bandaríkjanna hefði gengið að aðlagast nýrri varnastefnu Bandaríkjanna sem kynnt var í janúar. Hann sagði bandaríska herinn vera öflugari en hann hafi verið fyrir ári síðan og sömuleiðis hreyfanlegri.Sjá einnig: Snúa sér að Kína og RússlandiMattis sagði heiminn vera að ganga í gegnum breytingaskeið og mikilvægt væri að herafla Bandaríkjanna væri á tánum gagnvart nýjum áskorunum. Nefndi hann sérstaklega netárásir og átök í geimnum og sagði mikilvægt að átta sig á mikilvægi þeirra sviða hernaðar. Þá ræddi Mattis einnig þá hagræðingu og innri skoðun sem væri að eiga sér stað innan herafla Bandaríkjanna og sagði að þegar hefði tekist að sprara minnst fjóra milljarða dala á þessu ári.
Bandaríkin Mest lesið Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Hnífjafnt í nýrri könnun Innlent Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Innlent Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Innlent Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Innlent „Sá spyr sem ekki veit“ Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Kristrún situr fyrir svörum og opnað verður fyrir símann Innlent Fleiri fréttir Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Sjá meira