Líklegt byrjunarlið Íslands: Úr kuldanum hjá Heimi og beint í liðið hjá Hamrén Tómas Þórðarson í St. Gallen skrifar 7. september 2018 15:00 Guðlaugur Victor Pálsson fær nýtt líf með íslenska landsliðinu. vísir/getty
Erik Hamrén, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, hefur ekki verið í neinum feluleik í þessari fyrstu æfingaviku íslenska landsliðsins undir hans stjórn. Hann hefur leyft íslenskum blaðamönnum að fylgjast með öllum æfingum liðsins frá upphafi til enda og meira að segja sagt frá hugmyndum sínum um að spila með þriggja manna varnarlínu fyrr en síðar. Það virðist nokkuð ljóst hvernig fyrsta byrjunarlið Hamréns verður þegar að Ísland mætir Sviss í fyrsta leik Þjóðadeildarinnar klukkan 16.00 á morgun í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD. Sama liðinu hefur verið stillt upp í spili og taktík á æfingum en Hamrén er auðvitað án fjögurra af bestu leikmönnum Íslands. Aron Einar, Alfreð, Jóhann Berg og Emil Hallfreðsson eru allir frá vegna meiðsla. Emil er með hópnum en ekki klár í slaginn á morgun.Guðlaugur Victor spilaði vel í Kína en fékk aldrei tækifæri aftur.vísir/getty4-4-2 Hannes heldur stöðu sinni í markinu og Birkir að sjálfsögðu í hægri bakverði. Sverrir Ingi hefur nú tekið formlega við af Kára Árnasyni og verður við hlið Ragnars Sigurðssonar og þá virðist sem að Ari Freyr Skúlason sé búinn að taka stöðu sína aftur af Herði Björgvin Magnússyni. Hörður hefur reyndar verið tæpur í vikunni og því mögulegt að hann haldi stöðu sinni þar sem að hann er klár. Líklegra er þó að Ari Freyr fái aftur tækifæri undir stjórn nýs þjálfara. Hamrén spilar líklega 4-4-2 á morgun með Jón Daða og Björn Bergmann frammi miðað við uppstillinguna á æfingum í vikunni, Rúrik og Birkir eru á köntunum og Gylfi Þór Sigurðsson, fyrirliði inn á miðjunni. Við hlið hans á miðjunni er kannski það óvæntasta í þessu öllu saman. Það lítur allt út fyrir það að Guðlaugur Victor Pálsson, fyrirliði bikarmeistara FC Zürich, verði í byrjunarliðinu. Victor fékk fá tækifæri hjá forverum Erik Hamrén. Síðast spilaði Guðlaugur Victor tvo landsleiki á æfingamóti í Kína í janúar 2017 þar sem að strákar sem að spila á Íslandi og á Norðurlöndum fengu tækifæri. Victor stóð sig með prýði þar en sást svo ekki aftur á meðan að Heimir Hallgrímsson stýrði liðinu.Eftir tvö ár í burtu alveg fær Victor líklega séns í byrjunarliðinu.vísri/gettySvekktur en nú sáttur Þrátt fyrir að spila vel fyrir Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni og vera þar fyrirliði og fara svo til FC Zürich og leiða liðið að bikarmeistartitlinum spilaði Guðlaugur Victor aðeins þessa tvo leiki frá 2015 og þar til dagsins í dag. Miðjumaðurinn var ekki í 26 manna hóp sem fór til Katar fyrir áramót og ekki í 29 manna hóp sem fór til Bandaríkjanna í mars. Þá var hann ekki einu sinni í stóra 35-manna HM-hópnum sem Heimir valdi fyrir HM 2018 í Rússlandi. „Að sjálfsögðu er landsliðið eitthvað sem ég hef hugsað til. En þetta er undir einum manni komið. Hann tekur ákvarðanir og það er ekkert meira um það að segja,“ sagði Victor í viðtali við Fréttablaðið eftir að verða bikarmeistari en nú fær hann annan séns. „Ég er fyrst og fremst mjög ánægður með að vera kominn aftur. Ég er búinn að leggja mjög hart að mér að koma aftur inn í þennan hóp. Núna hef ég fengið tækifærið,“ sagði hann við Vísi í vikunni. Það eru þrjú ár síðan að Guðlaugur Victor var síðast í hóp í mótsleik en nú fær þessi 27 ára gamli miðjumaður gullið tækifæri vegna meiðsla lykilmanna að sanna sig og tryggja sér fast sæti í hópnum á næstu árum.Líklegt byrjunarlið Íslands (4-4-2): Hannes Þór Halldórsson - Birkir Már Sævarsson, Ragnar Sigurðsson, Sverrir Ingi Ingason, Ari Freyr Skúlason - Rúrik Gíslason, Gylfi Þór Sigurðsson, Guðlaugur Victor Pálsson, Birkir Bjarnason - Jón Daði Böðvarsson, Björn Bergmann Sigurðarson.
Þjóðadeild UEFA Tengdar fréttir Allir leikmenn fá samtal við Hamrén sem vill hlusta á fólkið í kringum sig Erik Hamrén reynir að ræða við alla leikmenn liðsins einn á einn. 7. september 2018 10:42 Gylfi og Hamrén hafa ekki heyrt Þjóðadeildalagið Gylfi Þór Sigurðsson og Erik Hamrén hafa aldrei heyrt lagið sem fylgir nýju keppninni. 7. september 2018 11:02 Upplifir enga ógn þrátt fyrir stólakast og óvinveitta heimsókn Hólmar Örn Eyjólfsson lenti heldur betur í senum í Evrópudeildinni með Levski Sofia. 7. september 2018 14:30 25 ára ellismellur í Moskvu sem fagnar komu „Arons“ Hörður Björgvin Magnússon er ánægður með lífið hjá stórliðinu CSKA Moskvu. 7. september 2018 13:00 Emil spilar ekki á morgun Erik Hamrén landsliðsþjálfari staðfesti á blaðamannafundi landsliðsins í Sviss í morgun að Emil Hallfreðsson muni ekki spila með liðinu á morgun. 7. september 2018 10:30 Mest lesið Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Enski boltinn Litlu munaði að illa færi er Bill Clinton birtist óvænt Sport Sex vítaspyrnur fóru forgörðum í taugatrekkjandi undanúrslitaleik Fótbolti Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Enski boltinn Lærisveinar Freys komnir í úrslitaleik norska bikarsins Fótbolti Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Körfubolti Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Enski boltinn Haaland skaut Manchester City á toppinn Enski boltinn „Strætóskýlið var gjörsamlega frábært í dag“ Sport Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Búið spil hjá Tómasi sem þarf að treysta á félaga sína til að ná titlinum Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Sex vítaspyrnur fóru forgörðum í taugatrekkjandi undanúrslitaleik Börsungar færast nær titlinum Í fyrsta sinn í úrslitaleikinn síðan 2020 ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans Haaland skaut Manchester City á toppinn „Ég er ekkert órólegur“ „Það er eiginlega óskiljanlegt“ Bikarþynnka herjaði á Orra og Real Sociedad Keflavík 0-0 Breiðablik | Litlaust í fyrsta grasleiknum Lærisveinar Freys komnir í úrslitaleik norska bikarsins Glódís Perla þýskur meistari fjórða árið í röð Ísland með Evrópumeisturunum í riðli á EM Rosenior rekinn frá Chelsea Markaskorari sem svífur framhjá leikmönnum Guðný fæddi boltabarn níu mánuðum eftir EM HK, Grótta, Fylkir og Þróttur á leið í Bestu deildirnar? Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Valur keypti Samúel Kára fyrir mikið fé Fimmtíu fótboltastjörnur og Formúlu-ökuþór nýttu sér vændishring Besta-spá kvenna 2026: Baráttan á botninum Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Sjáðu Orra fá hundrað þúsund manns til að öskursyngja Ronaldo gæti spilað með syni sínum Baulað á skúrk síðustu viku en Real heldur í vonina Ótrúleg endurkoma og Inter gæti náð tvennunni Sjá meira
Allir leikmenn fá samtal við Hamrén sem vill hlusta á fólkið í kringum sig Erik Hamrén reynir að ræða við alla leikmenn liðsins einn á einn. 7. september 2018 10:42
Gylfi og Hamrén hafa ekki heyrt Þjóðadeildalagið Gylfi Þór Sigurðsson og Erik Hamrén hafa aldrei heyrt lagið sem fylgir nýju keppninni. 7. september 2018 11:02
Upplifir enga ógn þrátt fyrir stólakast og óvinveitta heimsókn Hólmar Örn Eyjólfsson lenti heldur betur í senum í Evrópudeildinni með Levski Sofia. 7. september 2018 14:30
25 ára ellismellur í Moskvu sem fagnar komu „Arons“ Hörður Björgvin Magnússon er ánægður með lífið hjá stórliðinu CSKA Moskvu. 7. september 2018 13:00
Emil spilar ekki á morgun Erik Hamrén landsliðsþjálfari staðfesti á blaðamannafundi landsliðsins í Sviss í morgun að Emil Hallfreðsson muni ekki spila með liðinu á morgun. 7. september 2018 10:30
Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Körfubolti
Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Körfubolti