Haukarnir rúlluðu yfir ÍBV Anton Ingi Leifsson skrifar 15. október 2018 19:45 Berta Rut Harðardóttir skoraði fjögur mörk í kvöld. vísir/bára Haukar gerðu sér lítið fyrir og skelltu ÍBV, 29-20, í Olís-deild kvenna í kvöld. Leikurinn átti að fara fram um helgina en var frestað vegna samgönguörðugleika. Haukarnir byrjuðu af miklum krafti í kvöld en þær hafa byrjað tímabilð illa. Þær voru einungis með tvö stig eftir fyrstu fjóra leikina á tímabilinu. Þær voru frábærar í fyrri hálfeik. Varnarleikurinn frábær og sóknarleikur Eyjastúlkna ráðþrota. Tíu marka munur í hálfleik, 16-6, Haukunum í vil. Svipað var uppi á teningnum í síðari hálfleik. Munurinn varð að endingu níu mörk, 29-20, en varnarleikur Hauka var afar góður með Sögu Sif Gísladóttur í stuði í markinu. Hekla Rún Ámundadóttir var markahæst hjá Haukum með sex mörk og Ramune Pekerskyte, Berta Rut Harðardótir og Maria Periera gerði fjögur hvor. Hjá ÍBV var fátt um fína drætti. Ester Óskarsdóttir og Arna Sif Pálsdóttir voru markahæstar með fimm mörk hvor. Olís-deild kvenna