Dugleysið Björt Ólafsdóttir skrifar 10. október 2018 07:00 Fyrir nokkrum dögum kvað úrskurðarnefnd um umhverfis- og auðlindamál upp athyglisverðan úrskurð sem laut að því að starfsleyfi tveggja fyrirtækja í laxeldi á Vestfjörðum voru felld úr gildi. Margir hafa eðlilega mikla skoðun á þessu en ráðlegt væri að þeir sem opinberlega fjalla um málið læsu fyrst úrskurðinn og færu rétt með. Forsendur fyrir niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar eru afar yfirgripsmiklar og lesturinn sláandi. Í fréttum hefur komið fram sú að því er hefur virst eina ástæða ógildinganna, að stofnanir umhverfisráðuneytisins hafi ekki með nægjanlegum hætti fjallað um aðra kosti í sinni málsmeðferð en laxeldi í sjó, og þar með ekki farið að lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Það eitt og sér er auðvitað ámælisvert, og brýtur gegn lögum, en er þó fjarri því eina ástæðan sem tilgreind er fyrir synjun leyfanna. Fyrir það fyrsta rekur nefndin hvernig meiriháttar annmarkar hafi verið á allri málsmeðferð hvað varðar laxeldi í sjó af hendi íslenskra stjórnvalda í áraraðir. Samkvæmt 2. málslið 40. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands geta stjórnvöld ekki afhent eignar- eða afnotarétt að hafsvæði við landið sé ekki fyrir hendi sérstök lagaheimild til hinnar tilteknu ráðstöfunar hafsvæðisins. Hún sé ekki til staðar og þannig brjóti leyfisveitingarnar almennt gegn stjórnarskránni. Í öðru lagi tiltekur nefndin að Umhverfisstofnun hafi ekki tekið afstöðu eins og henni bar lögum samkvæmt til fyrirliggjandi mats á hættu á erfðamengun villtra laxa vegna laxeldis, mengunar í fjörðum (sem í þessu tilfelli er á við óhreinsað skolp frá 110 þúsund manna byggð að því er fram kemur í matsgögnum) og sjúkdóma í eldisfiski á við laxalús. Í þriðja lagi en ekki í síðasta lagi fjallar nefndin um þá staðreynd sem sé einnig ein og sér óhjákvæmilega umsvifalaus ógilding starfsleyfa, að fjarlægð á milli eldissvæða ótengdra aðila í þessum máli er ekki samkvæmt reglugerðum. Þetta eru staðreyndir málsins er varða dóm úrskurðarnefndar umhverfis og auðlindamála. Bara þegar það hentar mér Hitt er svo dugleysið í stjórnmálamönnunum sem tala um vernd lífríkis og náttúru á tyllidögum. Það er sorglegt og dýrkeypt fyrir landsmenn hvað veður skipast hér alltaf fljótt í lofti og það er auðvitað argasta hræsni að vinna við það að setja öðrum lög en fara bara eftir þeim eftir eigin hentugleika líkt og nú á að gera. Hvar eru þeir í pólitík sem eiga enn einhvern snefil af sannfæringu og hugsjón fyrir því meginstefi í náttúruvernd sem og verndun fjölbreytileika lífríkis að verndunin sjálf í eðli sínu sé það mikilvæga? Ekki fyrir peninga hvort sem það séu vasar Norðmanna eða veiðiréttarhafar laxveiðiáa. Heldur út af því að við sem erum hér í stutta stund höfum ekkert leyfi til þess að skemma hana til frambúðar. Þessi rök um ábyrgð kynslóðanna hafa reyndar þegar á reynir ekki fleytt náttúruverndinni langt á þessum síðustu tímum ólíkt því þegar Sigríður í Brattholti barðist fyrir verndun Gullfoss. En þá eru líka hæg heimatökin að benda á bullið í viðskiptamódelinu fyrir íslenska skattgreiðendur sem verða af tugum milljarða sem þeir norsku fá fyrir leyfin og þau takmörkuðu gæði sem firðirnir eru. Lærum einhvern tímann af fortíðinni. Fyrir nokkrum árum þótti stjórnmálamönnum Vinstri grænna olíuleit og kísilmálmver góðar og grænar hugmyndir ekki síst til þess að styðja við byggð í landinu. Hættum að láta eins og við vitum ekki að opið sjókvíaeldi sé mengandi. Og hættum að láta eins og störfin þar verði mörg til frambúðar mitt í því að stjórnmálamenn tala sig hása um fjórðu iðnbyltinguna og sjálfvirknivæðingu starfa sem verða þar auðvitað eins og í öðrum sjávarútvegi. Ég skil vel reiði Vestfirðinga sem hafa setið eftir. Pólitíkusar hafa ekki sinnt því að skapa almenn skilyrði til þess að fjölbreytt samfélag megi þar dafna. Það er gert með hringtengingu rafmagns, vegöngum og styrkingu vegakerfis og ljósleiðara. Þetta er hlutverk stjórnmálanna. Ef ráðamenn samtímans hafa ekki þá sýn að bjóða fólkinu í landinu hvort sem það býr á landsbyggðinni eða í borg að fá að búa heima hjá sér og hafa nóg að starfa án þess í leiðinni að eyðileggja lífríki og náttúru, þá á það fólk í stjórnmálunum að finna sér eitthvað annað að gera. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Björt Ólafsdóttir Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar