Ofbeldi einkennir þingkosningar í Afganistan Vésteinn Örn Pétursson skrifar 20. október 2018 17:15 Afganir ganga í dag til þingkosninga. Vísir/AP
Mikið hefur verið um ofbeldi í Afganistan í dag, en íbúar landsins ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til þings. Tugir hafa látið lífið í sprengjuárásum á kjörstaði víðs vegar um landið. Búið er að framlengja kosningartímann og munu þónokkrir kjörstaðir standa opnir fram á sunnudag. Varnarmálaráðuneyti Afganistan hefur sent af stað 70.000 meðlimi öryggissveita landsins til þess að reyna að tryggja að kosningarnar geti farið sem friðsamlegast fram. Ófremdarástandið í landinu þarf þó ekki að koma á óvart en töluvert hefur verið um ofbeldishótanir og voðaverk í aðdraganda kosninganna. Tíu kvenkyns frambjóðendur til þings hafa verið myrtir í kosningabaráttunni, sem bæði afganskir Talíbanar og íslamska ríkið hafa heitið að raska sem mest. Þá hafa tæknilegir örðugleikar einnig sett svip sinn á kosningarnar en Afganir notast í þessum kosningum í fyrsta sinn við rafrænt kosningakerfi, sem hefur reynst mörgum kjósendum erfitt að nota og hefur það valdið töfum á starfi kjörstaða. Úrslita kosninganna er ekki að vænta fyrr en í fyrsta lagi þann 10. nóvember, eða 20 dögum eftir að kosningunum lýkur.
Afganistan Erlent Mið-Austurlönd Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Fleiri fréttir Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Sjá meira